Veitur
Tilkynna mál til Hitaveitu Mosfellsbæjar
Hitaveitan tekur á móti tilkynningum um bilanir í vatns- og hitalögnum auk annarra neyðartilvika.
Á opnunartíma Þjónustuvers Mosfellsbæjar:
- Sími: 525-6700.
- Tölvupóstur: mos[hja]mos.is.

Veitur.is
Umsóknir
- Heimild vegna tímabundinna viðburða/framkvæmda.
- Leiðrétting vegna bilunar í hitakerfi.
- Ábending vegna vatns-, hita- og fráveitu.
- Umsókn um tengingu fyrir heitt vatn (pdf).
Um Hitaveitu Mosfellsbæjar
Hitaveita Mosfellsbæjar var stofnuð árið 1943 og er eign Mosfellsbæjar, undir yfirstjórn bæjarstjórnar en rekstrarstjórn hennar er falin forstöðumanni tækni- og umhverfissviðs.
Veitusvæði hitaveitunnar er lögsagnarumdæmi Mosfellsbæjar og hefur hitaveitan einkarétt til dreifingar og sölu á heitu vatni á veitusvæði sínu.
Tilgangur hitaveitunnar er að afla, selja og veita heitu vatni um veitusvæði sitt og reka aðra þá starfsemi sem því tengist.
Veitudeild Mosfellsbæjar sér um allt almennt viðhald veitukerfis í bæjarlandinu.