Gjaldskrár
| Samþykkt á 549. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 22. desember 2010 |
GJALDSKRÁ
Þjónustugjald í leiguíbúðum aldraðra.
1.gr.
Leigjendur í leiguíbúðum aldraðra á vegum Mosfellsbæjar greiði mánaðarlega 3.500,- þjónustugjald sem mæti kostnaði við þrif á sameign, umhirðu lóðar, hita og rafmagns í sameign, hita í íbúð, öryggiskallkerfis og lyftu.
2.gr.
Gjaldskrá þessi er samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar, með heimild í 20. gr. nr 125/1999 um málefni aldraðra, og gildir frá og með 1. janúar 2011.