Dagvist aldraðra
Samþykkt á 549. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 22. desember 2010
Gjaldskrá dagvist aldraðra.
1. gr.
Í samræmi við reglugerð nr. 1216/2008 um daggjöld stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum, sem sett er með stoð í 19. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra með síðari breytingum, skulu þeir sem dagvistar njóta í Mosfellsbæ greiða:
850 [1] ,- krónur á dag.
Íbúar í íbúðum aldraðra við Hlaðhamra sem njóta dagvistar greiði aldrei hærri upphæð, þá daga sem þeir eru skráðir í dagvist, en sem nemur kostnaði skv. gjaldskrá fæðissölu vegna þess fæðis sem þeir neyta í matsal þjónustumiðstöðvar, þó að hámarki:
850- krónur á dag.
2. gr.
Gjaldskráin tekur breytingum í samræmi við breytingu á reglugerð um daggjöld stofnana og gildir frá 1. janúar 2010.
[1] 3. mgr. 1. gr. rg. 1091/2009