Gjaldskrá
vegna styrks til fjölskyldna ungra barna
1. gr.
Sérstakar niðurgreiðslur til forgangshóps samkvæmt “Samþykkt um styrk til fjölskyldna ungra barna”:
Mánaðargreiðslur: kr. 31.800,-
2. gr.
Foreldrar sem ekki falla undir 1. gr. fá niðurgreiðslur sem hér segir.
Mánaðargreiðslur: kr. 25.000,-
3. gr.
Skilyrði fyrir niðurgreiðslum samkvæmt gjaldskrá þessari er að barnið eigi lögheimili í Mosfellsbæ og að skrifleg umsókn frá forráðamanni liggi fyrir. Styrkur er einungis veittur í ellefu mánuði ár hvert.
4. gr.
Styrkurinn fellur niður ef barn fer í daggæslu hjá dagforeldri með þjónustusamning við Mosfellsbæ, þar sem niðurgreiðslur eru hærri. Ef niðurgreiðslur eru lægri greiðist mismunur.
5. gr.
Gjaldskrá þessi er samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar og gildir frá 1. janúar 2009.