Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2010-11 fer fram í gegnum íbúagátt Mosfellsbæjar.
Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2010 fer fram frá 1. mars til 18. mars og skulu nemendur sækja grunnskóla eftir búsetu (sjá nánar reglur um skiptingu skólasvæða á heimasíðu Mosfellsbæjar www.mos.is slóðin er http://mos.is/Lifaoglaera/Grunnskolar/Skiptingskolasvaeda).
Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til Mosfellsbæjar eða koma úr einkaskólum þarf að fara fram fyrir 1. apríl.
Sérstök athygli er vakin á því, að umsóknarfrestur til að stunda nám í grunnskólum annarra sveitarfélaga er til 1.apríl og skulu umsóknir berast í gegnum íbúagátt Mosfellsbæjar. Sækja þarf um að nýju fyrir nemendur, sem nú eru í slíkum skólum, ef gert er ráð fyrir að þeir verði þar næsta vetur, þær umsóknir endurnýjast ekki sjálfkrafa.
Nánari upplýsingar og aðstoð veita skólastjórnendur grunnskólanna og Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar. Þeir sem óska eftir aðstoð og leiðbeiningum vegna Íbúagáttarinnar geta einnig snúið sér til Þjónustuvers Mosfellsbæjar.
Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar