Innritun nemenda í Listaskóla Mosfellsbæjar - tónlistardeild fyrir skólaárið 2010-2011 stendur nú yfir. Nemendur, sem eru í námi við Listaskóla Mosfellsbæjar – tónlistardeild, þurfa að staðfesta áframhaldandi nám fyrir 15. apríl 2010. Umsóknarfrestur fyrir nýja nemendur er til 15. apríl.
Nýir nemendur þurfa að sækja um skólavist í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar á slóðinni mos.is/ibuagatt