,,þegar þú verður sautján ára …“
 |
| Guðný Klængsdóttir (1832-1924) móðuramma Halldórs Laxness. Ljósm. Sigfús Eymundsson
|
Eftir að fjölskyldan flutti að Laxnesi fékk bernskuveröld Halldórs
nýjar víddir, drengurinn nærðist á töfrum náttúrunnar og nið aldanna
sem hann nam ekki síst af vörum ömmu sinnar, Guðnýjar Klængsdóttur, en
hún bjó einnig á heimilinu.
Þegar Halldór Laxness flutti ræðu
á nóbelshátíð í Stokkhólmi þann 10. desember 1955 minntist hann
sérstaklega Guðnýjar ömmu sinnar og sagði að þegar honum barst til
eyrna að hann hafi fengið nóbelsverðlaunin hafi hann hugsað „sér í lagi
til hennar ömmu minnar gömlu sem var búin að kenna mér ótal vísur úr
fornöld áður en ég lærði að lesa.
Ég hugsaði, og hugsa enn á
þessari stundu, til þeirra heilræða sem hún innrætti mér barni: að gera
aungri skepnu mein; að lifa svo, að jafnan skipuðu öndvegi í huga mér
þeir menn sem eru kallaðir snauðir og litlir fyrir sér; að gleyma
aldrei að þeir sem hafa verið beittir órétti eða farið góðra hluta á
mis, þeir sem hafa verið settir hjá í tilverunni og þeir sem öðrum
mönnum sést yfir - einmitt þeir væru mennirnir sem ættu skilið alúð,
ást og virðíngu góðs dreings umfram aðra menn hér á Íslandi."
2
Í samræmi við þessa lífskoðun sína stofnaði Halldór ásamt öðrum börnum
úr dalnum félag sem hét Barnafélag Mosfellsdalsins. Börnin höfðu það
m.a. á stefnuskránni að blóta ekki og vera hlýðin og góð. Helstu
heimildir um þetta félag eru félagslögin, sem Halldór skrifaði niður
tíu ára gamall, og bréf sem hann ritaði á bernskuárum til æskuvinar
síns Ólafs Þórðarsonar (1904-1989) á Æsustöðum, seinna á Varmalandi í
Mosfellsdal. Bréfin og lögin eru meðal þess elsta sem varðveist hefur
með hendi Halldórs.
Annars var Halldór á þessum árum þekktur
sem Dóri í Laxnesi og þótti sérstakur piltur. Það var snemma ljóst að
hann yrði hvorki bóndi né vegagerðarmaður eins og faðir hans,
ritstörfin áttu hug hans allan og sú ástríða tengdist ákveðnum atburði
sem gerðist þegar hann var sjö ára:
„Páskamorgun þegar ég var
sjö ára, eldri hef ég valla verið, þá fékk ég vitrun fyrir dyrum úti.
Það var heima í Laxnesi. Ég var á biflíusöguárunum, enda held ég ekki
leiki vafi á því að sú vitrun sem ég fékk hafi verið smitun af loftsýn
Páls postula.
Sólin var risin upp dansandi sem hæfir þessum
himnakroppi á páskum, eins þó kalt sé í veðri. Ég stend bakatil við
húsið, á hlaðhellum forna laxnessbæarins, í þessum blæ af upprisu, ögn
kaldranalegum, og horfi í austur; og sem ég stend þar þá er hvíslað að
mér utanúr alheimi þessum orðum: þegar þú verður sautján ára muntu
deya.
Fyrst varð ég dálítið hræddur. Síðan fór ég að hugsa.
Sem betur fór voru tíu ár til stefnu."
3
Eftir þetta sest Dóri í Laxnesi við skriftir og skrifar og skrifar eins
og hann eigi lífið að leysa í orðsins fyllstu merkingu.