Minningabækur
Ilmur af reyr
Á
efri árum ritaði Halldór fjórar endurminningabækur þar sem hann sótti
efniviðinn óspart á bernskuslóðir sínar, en þó í mismiklum mæli. Þótt
þessar bækur séu með skáldlegu yfirbragði draga þær upp lifandi
samfélagsmynd af Mosfellssveit á bernskuárum höfundar og sýna einnig
hvaða hug hann bar til æskuslóðanna. Nöfn bókanna, útgáfuár og tengsl
þeirra við Mosfellssveit eru sem hér segir:
Í túninu heima, útg. 1975.
Bókin
greinir frá bernskuárum Halldórs í Laxnesi og ýmsu í Mosfellssveit frá
þeim árum. Ómetanleg heimild um sveitina frá fyrsta hluta 20. aldar.
Sjömeistarasagan, útg. 1978.
Bókin
fjallar um þau ár þegar Halldór er í þann veginn að hleypa heimdraganum
úr Laxnesi. Í fyrsta kaflanum greinir hann frá þeirri vitrun sem hann
varð fyrir sjö ára í Laxnesi og átti eftir að verða afdrifarík.
Úngur ég var, útg. 1976.
Þessi
bók greinir frá fyrstu utanför Halldórs 1919 og bernskuslóðir hans koma
lítið við sögu. Þó segir hann frá sveitunga sínum Guðmundi Einarssyni
frá Miðdal í Mosfellssveit (bls. 86-87).
Grikklandsárið, útg. 1980.
Hér
segir Halldór m.a. frá Jóhanni Jónssyni skáldi og Einari Ól.
Sveinssyni, seinna prófessor í íslenskum bókmenntum. Einkum greinir
Halldór frá gönguferðum með þeim Jóhanni og Einari um Mosfellssveit.
Með minningabókum sínum er líkt og Halldór Laxness loki ákveðnum hring.
Ungur var hann staðráðinn í að sigra heiminn á bókmenntasviðinu og
tókst það. En hver vegur að heiman er vegurinn heim og í huga sínum er
Halldór kominn heim á bernskuslóðir sínar: „Oft er ég í draumi aftur
staddur í þessu túni bernskunnar, Laxnestúninu, og nú er ekki leingur
til. Ég var eitt af grösunum sem uxu í þessu túni. Stundum ímynda ég
mér að þetta hafi verið túnið í Völuspá, Iðavöllur, þar sem guðirnir
rísa aftur eftir Ragnarök. Það var íslenskt tún."
13
Bókinni
Í túninu heima lýkur á samnefndu ljóði, líklega því síðasta frá hendi Halldórs Laxness:
Á þessu nesi
í þessu túni
stóð bær.
Brúnklukka í mýri?
Nei, ekki meir.
En altær lind og ilmur af reyr.
Og þegar þú deyr þá lifir reyr
á þessu nesi
við þessa lind
í þessu túni
þar sem stóð bær:
Lind
Reyr -
1