Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar útnefnir ár hvert bæjarlistamann Mosfellsbæjar. Bæjarlistamaður hlýtur styrk frá Mosfellsbæ. Bæjarlistamaður kynnir sig og verk sín innan Mosfellsbæjar á því ári sem hann er tilnefndur.
Hér til hliðar er hægt að sjá hvaða listamenn hafa verið útnefndir Bæjarlistamenn Mosfellsbæjar frá 1995.
Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2011 er Bergsteinn Björgúlfsson, kvikmyndagerðarmaður.
Bergsteinn valinn bæjarlistamaður
Bergsteinn Björgúlfsson, kvikmyndagerðarmaður, hefur verið valinn bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2011. Bergsteinn hefur komið að gerð fjölda sjónvarpsþátta og kvikmynda, sem kvikmyndatökumaður.
Bergsteinn var sæmdur viðurkenningunni á bæjarhátíðinni Í túninu heima.
Hann hefur hlotið Eddu verðlaunin fimm sinnum, fjórum sinnum fyrir kvikmyndatökustjórn og einu sinni fyrir bestu heimildarmyndina en Bergsteinn framleiddi myndina Syndir feðranna sem fjallaði um drengi sem voru vistaðir á upptökuheimilinu Breiðavík á árunum 1955-1974. Myndin vakti gríðarlega mikla athygli í íslensku samfélagi þar sem löngu grafin leyndarmál voru dregin fram í dagsljósið.

Með honum á myndinni er Bryndís Brynjarsdóttir formaður menningarmálanefndar og Haraldur Sverrisson bæjarstjóri.