Listasalur Mosfellsbæjar
Samsýningin Huxi í Listasal Mosfellsbæjar
Í dag opna listamennirnir Hugleikur Dagsson og Örn Tönsberg samsýninguna Huxi í Listasal Mosfellsbæjar. Nemendum 10.bekkjar í myndlistavali í Varmárskóla í samvinnu við Lágafellsskóla hlotnaðist sá heiður að vera boðið að taka þátt í þessari ótrúlega spennandi sýningu.
Fatlað fólk á tímamótum. Eru mannréttindi virt?

Yfirfærsla á þjónustu fyrir fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga fór fram um síðustu áramót.
Af því tilefni heldur ÖBÍ fræðslu- og umræðufundi.
Næsti fundur 6. október í Listasal Mosfellsbæjar í Kjarna, Þverholti 2, klukkan 17.00-18.30.
OPIN HÚS - FRAMLAG ÞITT SKIPTIR MÁLI
Miðvikudaginn 28. september verður fyrsta opna hús vetrarins hjá Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar
Opnu húsin hjá Skólaskrifstofu hafa verið í gangi í 8 ár, alltaf haldin síðasta miðvikudag í mánuði yfir veturinn, í Listasal Mosfellsbæjar frá klukkan 20 - 21
Opin hús fyrir foreldra í Mosfellsbæ
Til foreldra/forráðamanna og annarra áhugasamra
Líkt og síðast liðin 8 ár verður Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar með opið hús í vetur fyrir alla er koma að uppeldi barna. Hvert kvöld hefst á stuttri fræðslu um efni kvöldsins og verða spurningar og umræður að lokinni fræðslu.
Opnun Rósu Sigrúnar Jónsdóttur í Listasal
Rósa Sigrún Jónsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2001 og hefur verið virk í íslensku myndlistarlífi frá námslokum. Auk sýningarhalds hefur hún kennt myndlist, verið sýningarstjóri og tekið að sér ýmis verkefni. Þar má nefna að hún var formaður Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík 2004-2007.
Listasalur Mosfellsbæjar
Á afgreiðslutíma Bókasafns Mosfellsbæjar er gengið inn í salinn úr Bókasafninu.
Ef uppákomur í Listasalnum eru utan opnunartíma Bókasafnsins er gengið beint inn í salinn um sérinngang Listasalarins sem snýr út að hringtorginu á mótum Þverholts og Háholts.
Umsjónarmaður Listasalar Mosfellsbæjar:
Gunnar Helgi Guðjónsson gunnarh[hjá]mos.is
Listasalur Mosfellsbæjar, Kjarna, Þverholti 2, 270 Mosfellsbær
Sími 566 6822 - 566 6860 - Fax 566 8114 - Netfang listasalur[hjá]mos.is
Listasalurinn er á Facebook www.facebook.com/listasalur.mos