7 tinda hlaupið verður haldið í þriðja sinn laugardaginn 11. júní 2011. Hlaupið hefst kl 10:00 við Íþróttamiðstöðina að Varmá í Mosfellsbæ. Ath. breyting frá fyrra ári. Hlaupið er utanvega um fjöll, heiðar og dali í bæjarlandi Mosfellsbæjar og komið aftur í mark við Íþróttamiðstöðina að Varmá. Leiðin verður merkt með skærlitum flöggum og spreyi á göngustígum.
Skoðið myndband frá hlaupinu 2009.
Vegalengd
Hlaupnar verða þrjár vegalengdir
- 7 tinda hlaup 37 km
- 5 tinda hlaup 34 km
- 3 tinda hlaup 19 km
Skráning og skráningargjald
Gjaldið fyrir 7 tinda hlaup er 5.000 kr, fyrir 5 tinda hlaup er gjaldið 4.000 kr og fyrir 3 tinda hlaup er gjaldið 3.000 kr. Takmarkaður þátttökufjöldi og skráningu lýkur í kl. 22:00 föstudaginn 10. júní. Forskráning fer fram hér á hlaup.is.
Einnig verður hægt að skrá sig á staðnum milli kl. 8 og 9.
Hlaupaleiðin 37 km - 7 tinda hlaupið
Kort af öllum leiðunum (Athugið að á korti er sýnt start og mark við Lágafellslaug en er við Varmárlaug)
Hlaupið er um vegleysur, fjöll, heiðar og dali. Aðeins lítill hluti leiðarinnar er í byggð og á vegi.
Hlaupið hefst við Íþróttamiðstöðina að Varmá í Mosfellsbæ. Hlaupið er fyrst eftir hjólastígum og gegnum íbúðarhverfi að undirgöngum á Vesturlandsvegi. Farið þaðan um skógræktarsvæðið við Hamrahlíð og hlaupið austur Úlfarsfellið með viðkomu á tindinum (1).
Þaðan austur af fjallinu með stefnu á Hafravatn. Áfram áleiðis á Reykjaborg um Borgardal (2).
Þegar komið er á Reykjaborg er stefnan tekin norður af Reykjaborg, um Húsadal og yfir Varmá og upp á Reykjafell (3).
Þaðan er hlaupið niður í Skammadal og áfram upp á efsta hnjúk Æsustaðafjalls (4).
Áfram suður eftir fjallinu og stefnan tekin austur að Torfdalsbrúnum og áfram upp á Hjálminn. Þaðan áfram í austur og alla leið á hæsta tind Grímmannsfells (5).
Farið síðan vestur á Flatafell og áfram niður að Hraðastöðum. Haldið síðan þvert yfir Mosfellsdal um Guddulaug og síðan vestur að Mosfellskirkju. Þaðan farið á Mosfellið. Fyrst í norður frá kirkjunni uns komið er upp fyrir öll gil, og þá sveigt til vesturs rakleiðis á hæsta hnjúkinn (6).
Farið síðan í suður niður af fjallinu og um bæjarhlaðið á Hrísbrú. Haldið áfram niður veginn og yfir Köldukvísl og Suðurá á brú. Síðan farið á Helgafellstind frá Skammadalsvegi og Þingvallavegi (7).
Þegar Helgafellstindinum er náð er farið suð-vestur af fjallinu og komið niður við Helgafell. Farið áfram gegnum Áslandshverfið og niður á malbikaðan göngustíg meðfram Vesturlandsvegi. Þar farið um undirgöng og eftir göngustíg áleiðis að Íþróttamiðstöðinni við Varmá þar sem komið er í mark.
Hlaupaleiðin 34 km - 5 tinda hlaupið
Kort af öllum leiðunum (Athugið að á korti er sýnt start og mark við Lágafellslaug en er við Varmárlaug)
Hlaupið er um vegleysur, fjöll, heiðar og dali. Aðeins lítill hluti leiðarinnar er í byggð og á vegi.
Hlaupið hefst við Íþróttamiðstöðina að Varmá í Mosfellsbæ. Hlaupið er fyrst eftir hjólastígum og gegnum íbúðarhverfi að undirgöngum á Vesturlandsvegi. Farið þaðan um skógræktarsvæðið við Hamrahlíð og hlaupið austur Úlfarsfellið með viðkomu á tindinum (1).
Þaðan austur af fjallinu með stefnu á Hafravatn. Áfram áleiðis á Reykjaborg um Borgardal (2).
Þegar komið er á Reykjaborg er stefnan tekin norður af Reykjaborg, um Húsadal og yfir Varmá og upp á Reykjafell (3).
Þaðan er hlaupið niður í Skammadal og áfram upp á efsta hnjúk Æsustaðafjalls (4).
Áfram suður eftir fjallinu og stefnan tekin austur að Torfdalsbrúnum og áfram upp á Hjálminn. Þaðan áfram í austur og alla leið á hæsta tind Grímmannsfells (5).
Farið síðan vestur á Flatafell og áfram niður að Hraðastöðum.
Þaðan er hlaupið vestur Mosfellsdal, á göngleið meðfram Þingvallavegi. Þegar komið er að Áslandshverfi er farið um undirgöng og eftir göngustíg áleiðis að Íþróttamiðstöðinni við Varmá í mark.
Hlaupaleiðin 19 km - 3 tinda hlaupið
Kort af öllum leiðunum (Athugið að á korti er sýnt start og mark við Lágafellslaug en er við Varmárlaug)
Hlaupið er um vegleysur, fjöll, heiðar og dali. Aðeins lítill hluti leiðarinnar er í byggð og á vegi.
Hlaupið hefst við Íþróttamiðstöðina að Varmá í Mosfellsbæ. Hlaupið er fyrst eftir hjólastígum og gegnum íbúðarhverfi að undirgöngum á vesturlandsvegi. Farið þaðan um skógræktarsvæðið við Hamrahlíð og hlaupið austur Úlfarsfellið með viðkomu á tindinum (1).
Þaðan austur af fjallinu með stefnu á Hafravatn. Áfram áleiðis á Reykjaborg um Borgardal (2).
Þegar komið er á Reykjaborg er stefnan tekin norður af Reykjaborg, um Húsadal og yfir Varmá og upp á Reykjafell (3).
Þaðan er hlaupið niður í Skammadal, suður og vestur með Helgafelli og áfram gegnum Áslandshverfið og niður á malbikaðan göngustíg meðfram Vesturlandsvegi. Þar farið um undirgöng og eftir göngustíg áleiðis að Íþróttamiðstöðinni við Varmá í mark.
Verðlaun
Verðlaun fyrir 3 fyrstu sæti karla og kvenna í öllum vegalengdum.