Brosandi bær

photo_1_2dfbb2cce354832fffac2d85c5c314f1
 
Sumarið verður að vanda litríkt í Mosfellbæ.


Hið vinsæla sumartorg verður starfrækt í þriðja sinn og verður nú haldið á fimmtudagseftirmiðdögum. Alla fimmtudaga kl. 16.00 í sumar fram að verslunarmannahelgi verður Mosfellingum - ungum sem öldnum boðið að koma og upplifa sannkallaða sumarstemningu á torginu okkar.


Einnig verður boðið upp á ýmsa aðra viðburði víða um bæinn og því er um að gera að fylgjast vel með hér á síðunni.


Fjölmennum og njótum þess sem er í boði í bænum okkar!

 


Hér má sjá dagskrána í heild sinni!

 

 

Markaður í Kjarna á fimmtudag

Markaður á Miðbæjartorgi 001 Ýmissa grasa mun kenna á markaði sem haldinn verður í Kjarna á fimmtudag. Mosfellingar munu bjóða ýmsan varning til sölu og má þar nefna ný og notuð föt, bækur, plöntur frá Suður-Reykjum, skargripi, málverk og hönnun. Opið verður frá 15-18, lifandi tónlist verður á staðnum og eru allir hvattir til að líta við. Munið eftir klinkinu!

Sögutorg á fimmtudag

sögutorg myndSögubíllinn Æringi verður á miðbæjartorginu næstkomandi fimmtudag og heldur skemmtilega sögustund fyrir börnin í Mosfellsbæ. Sóla sögukona sem býr í bílnum er dóttir hennar Grýlu en strauk að heiman ung að aldri alla leið til útlanda. Sóla kann sögur frá öllum heimshornum og alltaf til í að syngja og sprella. Allir velkomnir!

Listatorg á fimmtudaginn

pallateÁ fimmtudaginn verður torgið vettvangur tóna, leiks og lita. Risalistaverk verður útbúið í sameiningu af listaspírum bæjarins. Pensla og liti fá allir sem vilja skapa og þemað er sumar í Mosó. Athuga að best er að vera klæddur í föt sem má slettast í.
Listaverkið verður svo sýnt á bæjarhátíðinni ,,Í túninu heima".

Þrautatorg - grænjaxlar, glíma, bolti og sykurpúðar.

WDCC-2008-INSTANT-KIT-NEPHEW-IÍ dag, fimmtudag kl.16.00, verða skemmtilegar þrautir á miðbæjartorginu og eru allir velkomnir. Fótboltakappar Mosfellsbæjar sýna listir sínar og  Mosverjar skora á fólk í stultugang, líflínukast og fleira sem þeim skátum er einum lagið. Glímukappinn Hlynur Guðmundsson mun einnig mæta á svæðið og kenna íslensk glímubrögð af sinni alkunnu snilld.

Allir þrautakóngar og -drottningar torgsins í dag geta svo fengið að grilla popp og sykurpúða í góða veðrinu. :) Ekki missa af þessu!

Leikhópurinn Lotta á Hlégarðstúninu

211062_56939579991_6097003_n

Leikhópurinn Lotta sýnir glænýtt íslenskt leikrit um Mjallhvíti og dvergana sjö á túninu við Hlégarð klukkan 18 í dag, þriðjudaginn 5. júlí.

Sýningin er um klukkustund að lengd, gott er að klæða sig eftir veðri þar sem sýnt er utandyra og um að gera að taka með sér teppi til að sitja á. Þá mælir Lotta með því að foreldrar taki myndavélina með þar sem áhorfendur fá að hitta persónurnar úr leikritinu eftir sýningu.

Miðaverð á sýninguna er einungis 1.500 krónur og ekki þarf að panta miða fyrirfram.

Brúðutorg í dag, fimmtudag!

IMG_1256Í dag, fimmtudag, ætla Lilli og félagar hans úr Brúðubílnum að koma í heimsókn á miðbæjartorgið. Sýningin hefst klukkan 16 og sýnt verður leikritið ,,Sögurnar hans Lilla" sem er splunkunýtt. Allir velkomnir og gott er að koma með teppi til þess að sitja á!

Jónsmessugleði í Lágafellslaug

Nú fyrir helgi var efnt til Jónsmessusunds í Lágafellslaug í fyrsta sinn. Opið var fyrir alla eldri en 13 ára. Vel var mætt og plötusnúðurinn Binni LUUV þeytti skífum allt til miðnættis er glaðir gestir héldu út í Jónsmessunóttina.

Sirkusstemning á miðbæjartorginu í dag kl.16!

circus-boyÍ dag, fimmtudag, kemur sirkusfólk í heimsókn til okkar á miðbæjartorgið. Þau munu sýna ýmsar listir auk þess að halda lítinn sirkusskóla fyrir gesti og gangandi. Fjörið hefst kl. 16 !