
Leikhópurinn Lotta sýnir glænýtt íslenskt leikrit um Mjallhvíti og dvergana sjö á túninu við Hlégarð klukkan 18 í dag, þriðjudaginn 5. júlí.
Sýningin er um klukkustund að lengd, gott er að klæða sig eftir veðri þar sem sýnt er utandyra og um að gera að taka með sér teppi til að sitja á. Þá mælir Lotta með því að foreldrar taki myndavélina með þar sem áhorfendur fá að hitta persónurnar úr leikritinu eftir sýningu.
Miðaverð á sýninguna er einungis 1.500 krónur og ekki þarf að panta miða fyrirfram.