Kvennahlaupið

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ

Varmá laugardaginn 4. júní kl. 11.00

Þemað í ár: „Hreyfing allt lífið“

Hlaupið hefst kl. 11:00 á íþróttavellinum að Varmá. Skráning hefst kl 10:00 á staðnum en forsala bola er hafin í Lágafellslaug. Boðið verður upp á andlitsmálningu fyrir börnin frá kl. 10 og hefst upphitun fyrir hlaupið stundvíslega kl. 10.45.

Í boði eru 3, 5 og 7 km. Þátttökugjald er kr 1250 og fá allir þátttakendur bol og verðlaunapening.  Að auki fá langömmur rós.

Léttar teygjur verða að loknu hlaupi og tilvalið er að skella sér frítt í Varmárlaug að hlaupi loknu.

Næg bílastæði eru við Hlégarð, Brúarland  og við Íþróttamiðstöðina að Varmá

Kynntu þér vel hlaupaleiðirnar á www.mos.is/kvennahlaup og www.sjova.is.

Veldu þér vegalengd og njóttu þess að skokka/ganga á þínum hraða í góðum félagsskap.

Mætum tímanlega.

Kvennahlaupið að Hlaðhömrum 31. maí

Kvennahlaup/ganga verður frá Hlaðhömrum þriðjudaginn 31. maí kl 14:00 nokkrar vegalengdir í boði. 

Bolir verða seldir á staðnum.  Þátttökugjald er 1250 kr.  Innifalið í því er bolur og verðlaunapeningur.

Hvetjum fjölskyldur og vini að vera með sínum konum.