Í túninu heima

Bæjarhátíð Mosfellsbæjar fer fram dagana 26.-29. ágúst
Dagskrá hátíðarinnar (smellið hér)

 Í túninu heima

















Bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima, er haldin síðustu helgina í ágúst ár hvert. Hátíðin er sannkölluð fjölskylduhátíð sem stendur í þrjá daga og geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.

Fjölbreyttir menningarviðburðir eru í boði, tónleikar, myndlistasýningar, útimarkaðir og íþróttaviðburðir svo fátt eitt sé nefnt. Hátíðin hefst formlega á föstudagskvöldi á miðbæjartorgi Mosfellsbæjar þaðan sem gengið er í karnivalskrúðgöngu í svokallaðar Ullarnesbrekkur milli Varmár og Köldukvíslar þar sem varðeldur er tendraður og brekkusöngur fer fram.

Hápunktur hátíðarinnar er á laugardagskvöld þegar stórtónleikar fara fram á miðbæjartorgi og stíga ávallt landsþekktar hljómsveitir ásamt heimamönnum á svið. Sérstök barnadagskrá er í upphafi tónleikanna.

Markaðir eru um allan bæ, jafnt innimarkaðir í íþróttahúsinu að Varmá, sem og útimarkaðir í Álafosskvos og Mosfellsdal.