Uppl. til foreldra um fyrirkomulag niðurgreiðslna
Upplýsingar um vistun barns hjá dagforeldri
1. Dagforeldrar með þjónustusamning:
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar gerir þjónustusamning við þá dagforeldra sem þess óska bæði innanbæjar sem utan.
Skilyrði fyrir niðurgreiðslu:
- Að hlutaðeigandi barn hafi náð 9 mánaða aldri og eigi lögheimili í Mosfellsbæ. Greiðslur hefjast í næsta mánuði eftir að barnið hefur náð 9 mánaða aldri. Greiðslur vegna barna einstæðra foreldra hefjast í mánuðinum eftir að barnið er orðið 6 mánaða.
- Að viðkomandi dagforeldri hafi leyfi samkvæmt reglugerð um daggæslu í heimahúsum.
- Að fyrir liggi þjónustusamningur milli dagforeldris, foreldra og dagvistarfulltrúa Mosfellsbæjar.
- Við upphaf vistunar barns hjá dagforeldri sem er með þjónustusamning þá er gerður þríhliða samningur milli foreldra, dagforeldris og daggæslufulltrúa f.h. Mosfellsbæjar.
- Í samningnum kemur fram hvenær barn byrjar vistun, vistunartíminn, mánaðargjald foreldra og niðurgreiðsla frá Mosfellsbæ til dagforeldris. Uppsögn á samningnum skal gerð með mánaðarfyrrivara.
2. Dagforeldrar án þjónustusamnings:
Þegar börn eru vistuð hjá dagforeldri sem ekki er með þjónustusamning við Mosfellsbæ þá eru engar niðurgreiðslur af hálfu Mosfellsbæjar til dagforeldris.