Gæsluleikvöllur
Í Mosfellsbæ er starfræktur gæsluleikvöllur í júlímánuði - opnar 4. júlí 2011
Aðsetur: Við Njarðarholt, aðkoma frá bílastæði norðan megin við Kjarna.
Sími: 566 6959
Aldur: 20 mán. - 6 ára
Gjaldskrá gæsluleikvallar: 150 kr. klst.
Innheimt er fullt klukkustundargjald fyrir hverja byrjaða klst.
Opnunartími:
kl. 9:00 - 12:00
kl. 13:00 - 16:00
Á gæsluleikvellinum gefst börnum tækifæri á að leika sér í öruggu og skemmtilegu umhverfi undir eftirliti starfsfólks.
Tilmæli til foreldra og forráðamanna..
Nefndir:
Fræðslunefnd fer með málefni gæsluleikvallar í umboði bæjarstjórnar