Kennsluráðgjafi
Kennsluráðgjafi er starfsmaður sérfræðiþjónustu Mosfellsbæjar og sér um kennslufræðilega ráðgjöf út í skólana. Kennsluráðgjafi sinnir umsýslu vegna ýmissa erinda og samstarf við félagsþjónustu Mosfellsbæjar. Kennsluráðgjafi hefur einnig eftirlit með sérkennslu og öðrum námsúrræðum fyrir nemendur í Mosfellsbæ. Önnur verkefni kennsluráðgjafa eru almenn fræðsla og upplýsingagjöf til foreldra ásamt samræmingu og tengslum skólastiganna. Einnig aðstoðar hann við undirbúning og framkvæmd þróunarverkefna í grunnskólunum eftir því sem kostur er.
Hann, ásamt skólafulltrúa og verkefnastjóra standa fyrir námskeiðum og fræðslufundum í skólum Mosfellsbæjar, fyrir grunnskólakennara, stuðningsfulltrúa og aðra starfsmenn grunnskóla, félagsmiðstöðvar og frístundaselja og sér um skipulagningu þeirra.
Kennsluráðgjafi er Ragnheiður S Jóhannsdóttir rj[hja]mos.is