
Sumarfjör ítóm 2013
Sumarfjör ÍTOM hefjast mánudaginn 10 júní. fyrir börn fædd 2004 - 2007.
Námskeiðin eru fyrir nemendur í yngstu bekkjum grunnskóla og einnig fyrir þau sem eru að hefja skólagöngu á komandi hausti.
Námskeið verða í báðum íþróttamiðstöðum Mosfellsbæjar, en þó ekki á sama tíma (sjá meðfylgjandi dagskrá)
Leikjanámskeið Íþrótta- og tómstundaskóla Mosfellsbæjar, Sumarfjör 2012 verður með svipuðu móti og undanfarin ár. Lögð verður mikil áhersla á útivist og almennar íþróttir ásamt tómstundum.
Farið verður í stuttar ferðir, leiki, farið á báta, hjólreiðatúr, íþróttir, fjallgöngu, ratleik, golf, sund og margt fleira skemmtilegt.
Ætlast er til að börnin komi með nesti og hlífðarföt að heiman. Þau börn sem eru allan daginn borða þrisvar sinnum og þau sem eru hálfan daginn borða einu sinni.
Þau börn sem að þurfa á stuðning að halda, fá hann en merkja þarf sérstaklega við það á umsókn.
Skráningar hefjast 6. Maí í íþróttamiðstöðinni að Varmá.
Ath. takmarkaður fjöldi á hvert námskeið. Greiða þarf þátttökugjald gjald við skráningu.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar í Íþróttamiðstöðinni að Varmá í síma 566-6754
Boðið er upp á morgungæslu kl. 8:00-9:00 og síðdegisgæslu 16:00 -17:00, ef að nægur fjöldi næst, hver klst. kostar 290.- kr.
Sumarnámskeið ÍTÓM verða 8 eins vikna námskeið
Námskeið 1 er frá 10. júní til 14. júní / Íþróttamiðstöðin Lágafelli
Námskeið 2 er frá 18. júní - 21. Júní / Íþróttamiðstöðin Lágafelli
Námskeið 3 er frá 24. júní - 28. Júní / Íþróttamiðstöðin Lágafelli
Námskeið 4 er frá 1. júlí - 5. Júlí / Íþróttamiðstöðin Lágafelli
Námskeið 5 er frá 8. júlí - 12. Júlí/ Íþróttamiðstöðin Varmá
Námskeið 6 er frá 15. júlí -19. júlí/ Íþróttamiðstöðin Varmá
Námskeið 7 er frá 22. júlí - 26. Júlí/ Íþróttamiðstöðin Varmá
Námskeið 8 er frá 12.ágúst – 16:ágúst / Íþróttamiðstöðin Varmá tilvalið námskeið fyrir þau börn sem að er hætt á leikskólanum og eru að hefja nám í 1. bekk
Námskeiðsgjald skal greitt við skráningu.
Ef að ekki næst lágmarksfjöldi á námskeið, má búast við að því verði frestað.
Hvert námskeið 1/1 kostar kr. 10200
Auka klukkustund kostar Kr 290.