Vinnuskólinn

Vinnuskóli Mosfellsbæjar sumarið 2012  verður starfræktur á tímabilinu 7. júní til 30. júlí.

Skráning í Vinnuskóla Mosfellsbæjar fer fram í gegnum íbúagátt á  www.mos.is/ibuagatt.
Umsóknarfrestur er til 28. mars.

Foreldrar og nemendur eru beðnir að kynna sér efnið hér að neðan.

Daglegur rekstur Vinnuskólans skólans er í höndum tómstundarfulltrúa, Markmið skólans eru:

•    Að kenna nemendum að vinna og hegða sér á vinnustað
•    Að  kenna nemendum að umgangast  bæinn sinn
•    Að auka skynjun og virðingu nemenda fyrir umhverfinu.
•    Að veita nemendum vinnu yfir sumartímann.

Forráðamenn unglinga sækja um vinnu fyrir börnin sín í gegnum Íbúagáttina. Þar er hægt að velja hvaða tímabil unglingurinn vinnur.  Þeir sem að sækja um á réttum tíma fá vinnu,  en þó með þeim fyrirvara að ekki geta allir átt von á fá vinnu það tímabil sem að þeir óska eftir.   Allir umsækjendur munu fá póst sendan þegar að raða hefur verið niður í flokka.

Vinnutímabil:

•    8. bekkur:   tvö tímabil  A.  7 júní – 29. júní /  B. 2 júlí til 25. júlí (52 klst)
•    9. bekkur:  tvö tímabil   A. 7. júní – 5. júlí  / B. 2. júlí til 30. júlí (94 klst)
•    10. bekkur: tvö tímabil  A. 7. júní – 5. júlí  / B. 2. júlí til 30. júlí (110 klst)

Vinnuskólinn sér um snyrtingu og fegrun bæjarins ásamt því að starfa á athafnasvæðum félaga og klúbba sem staðsett eru í bænum. Flest störf sem eru í boði eru útistörf, svo sem snyrting og umhirða á opnum svæðum, létt viðhald og önnur störf í þeim dúr. Starfsmönnum er skipt upp í hópa, yfirleitt eftir búsetu en við lítum svo á allir þurfi að læra að vinna með hverjum sem er svo að skipting í hópa fer ekki eftir bekkjum eða vinahópum.
Einhver hópur nemenda þjáist af gróðurofnæmi, mismiklu þó.  Þeir sem að verst þjást af því geta farið í sérstakan hóp, en eru þó að vinna úti en ekki í beðum og gróðurvinnu.  Tekið skal fram á umsókninni ef að þið teljið ykkur eiga heima þar.

Skólasetning vinnuskólans fer fram fimmtudaginn 7. júní kl: 08:30 í félagsmiðstöðinni Ból við Varmárskóla og hefst vinna strax að henni lokinni. 
Klæðið ykkur eftir veðri.

Nemendum vinnuskólans ber að fylgja reglum skólans sem að meginmarkmiðum eru þessar:

•    Mæta stundvíslega og vinna samviskusamlega
•    Fara vel með eignir Vinnuskólans og bera virðingu fyrir eignum annarra
•    Ef að um veikindi er að ræða skal forráðamaður tilkynna þau
•    Ekki skal talað í farsíma á vinnutíma
•    Vinnuskólinn er reyklaus vinnustaður

 

Vinnuskólinn