Hugmyndin að stofnun heilsuklasa í Mosfellsbæ er að hagsmunaaðilar í Mosfellsbæ ásamt tengdum aðilum, taki sig saman um að móta klasa sem byggir á þeirri þekkingu og reynslu sem samfélagið í Mosfellsbæ býr yfir á sviði endurhæfingar og heilsueflingar.
Tilgangurinn með samstarfinu er að koma á laggirnar klasa til að byggja upp og efla alla starfsemi og þekkingu á sviði heilsueflingar, heilsuræktar og endurhæfingar í Mosfellsbæ.
Klasinn var formlega stofnaður að Reykjalundi þann 28. mars 2011. Heilsuklasinn hlaut síðar nafnið Heilsuvin Mosfellsbæjar. Markmið Heilsuvinjar er að efla atvinnuuppbyggingu í hvers kyns heilsutengdri þjónustu með öflugu samstarfi í þróunar- og markaðsmálum. Heilsuvin er hlutafélag og hafa allir áhugasamir einstaklingar og fyrirtæki rétt á því að gerast hluthafar.