Stofnfundur

Framhaldsstofnfundur Heilsuklasa í Mosfellsbæ verður haldinn að Reykjalundi mánudaginn 18. apríl kl. 17.30.

Á fundinum verður kosið í stjórn félagsins. Þeir sem hafa áhuga á því að bjóða sig fram, vinsamlegast sendið tilkynningu á sigridurdogg@mos.is fyrir 15. apríl nk. Þar skal tilgreina nafn, kennitölu, netfang, síma, og stutta lýsingu á því hvers vegna viðkomandi vill starfa í stjórn heilsuklasans.

Dagskrá fundarins:
1. Stofnun félagsins
2. Samþykkt félagsins
3. Kosning stjórnar og skoðunarmanna
4. Önnur mál

Stofnfundur Heilsuklasa í Mosfellsbæ var haldinn að Reykjalundi mánudaginn 28. mars sl. Alls mættu rúmlega 50 á fundinn og skráðu 36 sig fyrir stofnfjárframlagi og fleiri hafa bæst við síðan.

Ákveðið var að halda framhalds-stofnfund þar sem kosin yrði stjórn félagsins og hefðbundin stofnfundarstörf færu fram.

Enn er hægt að gerast stofnaðili að heilsuklasans. Heilsuklasi Mosfellsbæjar verður einkahlutafélag í eigu allra þeirra hagsmunaaðila sem að honum standa.  Gert er ráð fyrir að safna alls um 6 milljónum króna í hlutafé á árinu 2011. Reiknað er með að lágmarksstofnframlög miðist við stærð fyrirtækja með eftirfarandi hætti:

  • Fyrirtæki í flokki A (100+ starfsmenn) greiði kr 500.000,-
  • Fyrirtæki í flokki B (20-99 starfsmenn) greiði kr 250.000,-
  • Fyrirtæki í flokki C (5-19 starfsmenn) greiði kr 100.000,-
  • Fyrirtæki í flokki D (1-4 starfsmenn) greiði kr 50.000,-
  • Einstaklingar (ekki í atvinnurekstri) greiði kr. 10.000,-

Mosfellsbær hefur lýst yfir áhuga sínum á að taka þátt í stofnun klasans og hefur tekið virkan þátt í undirbúningi hans. Bæjarráð hefur samþykkt að fyrir hverja krónu sem safnast í stofnfé og styrki mun Mosfellsbær leggja fram aðra krónu, en að hámarki 3 milljónum króna.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt er bent á að hafa samband við forstöðumann kynningarmála hjá Mosfellsbæ, Sigríði Dögg Auðunsdóttir, sigridurdogg@mos.is

Allar nánari upplýsingar veita verkefnisstjórar:
Jón Pálsson, s. 664 2802, netfang: jon@ans.is 
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, s. 894 9050, netfang: sigridurdogg@mos.is
Sævar Kristinsson, s. 824 2424, netfang: sk@netspor.is