Ferðaþjónusta fyrir fatlað fólk

Samþykkt í fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar 13. nóvember 2007

Viðmiðunarreglur Mosfellsbæjar
fyrir ferðaþjónustu fatlaðra.

I. Kafli
Markmið, hlutverk og skipulag ferðaþjónustu fyrir fatlaða
1. gr.
Markmið
Markmið ferðaþjónustu fatlaðra er að gera þeim sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki kleift að stunda atvinnu og nám og njóta tómstunda. Starfsmenn hafa við mat á þjónustuþörf ávallt að leiðarljósi getu og færni umsækjanda.

2. gr.
Hlutverk
Hlutverk Ferðaþjónustu fatlaðra er að veita fötluðu fólki ferðir til vinnu, skóla, lækninga og hæfingar, ganga fyrir öðrum ferðum. Fjöldi ferða til annarra einkaerinda er háður takmörkunum, en við það skal miða að þær verði ekki fleiri en 16 á mánuði og heildarfjöldi ferða eigi meiri en 60 á mánuði. Ferð er skilgreind í reglum þessum sem akstur milli tveggja staða, en ekki akstur fram og til baka.

3. gr.
Réttur til þjónustu
Rétt til ferðaþjónustu fatlaðra eiga þeir íbúar Mosfellsbæjar sem eru:
a) Hjólastólsnotendur
b) Blindir og geta eigi notað önnur flutningstæki.
c) Ófærir um að nota almenningsvagnaþjónustu vegna annarrar fötlunar og hafa ekki aðgang að eigin farartæki.
Í sérstökum tilvikum er heimilt að veita 67 ára og eldri ferðaþjónustu þrátt fyrir að ekki liggi fyrir skyldur bæjarfélagsins til slíkrar þjónustu samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999.
1) Hafi umsækjandi um ferðaþjónustu verið metinn til 75% örorku hjá Tryggingastofnun ríkisins skal hann að uppfylltum skilyrðum 1. gr. fá þjónustu samkvæmt 2. gr. þessara reglna.
2) Aðrir geta fengið ferðaþjónustu í dagvist aldraðra utan Mosfellsbæjar.1 Ferðir í sjúkraþjálfun og vegna reglubundinnar meðferðar á sjúkrastofnun eru heimilaðar, en við það skal miðað að heildarfjöldi ferða verði aldrei fleiri en 36 á ári.

4. gr.
Stjórn og yfirumsjón
Fjölskyldunefnd fer með stjórn ferðaþjónustu fatlaðra á vegum Mosfellsbæjar. Félagsmálastjóri fjölskyldusviðs hefur yfirumsjón með ferðaþjónustu fatlaðra. Félagsráðgjafi hefur faglega ábyrgð á þjónustunni þ.m.t. mat á þjónustuþörf.
1 Þeir sem sækja dagvist að Hlaðhömrum fá akstur samkvæmt reglum um dagvist aldraðra í Mosfellsbæ 2.gr, 27.04.2005.
Samþykkt í fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar 13. nóvember 2007
II. Kafli
Framkvæmd þjónustunnar

5. gr.
Umsókn
Umsókn um ferðaþjónustu fatlaðra skal vera skrifleg eða á rafrænum umsóknum sem nálgast má á heimasíðu Mosfellsbæjar (www.mos.is). Í umsókn skal koma fram almennar upplýsingar um umsækjanda, óskir um ferðafjölda og í hvaða tilgangi þær eru farnar. Þá skal koma fram upplýsingar um fötlun umsækjanda og hvort hann hafi umráð yfir bifreið. Þá skal umsækjandi leggja fram við frumumsókn, staðfestingu sérfræðings um þörf á ferðaþjónustu, fjölda ferða og tímalengd þjálfunar eða endurhæfingar þar sem það á við.
Umsókn um ferðaþjónustu fatlaðra sendist til skrifstofu Mosfellsbæjar og skal hún metin á grundvelli möguleika umsækjanda til að nýta sér þjónustu almenningsvagna og/eða aðra ferðamöguleika.

6. gr.
Þjónustutími
Þjónustutími þjónustuaðila er sem hér segir:
Virka daga frá kl. 07:00 - kl. 24:00
Laugardaga frá kl. 08:00 - kl. 24:00
Sunnudaga frá kl. 10:00 - kl. 24:00
Á stórhátíðum miðast þjónustutími við akstur almenningsvagna.

7. gr.
Pöntun ferða
Tekið er á móti pöntunum í síma 550 4700 alla virka daga milli kl. 09:00 og 16:00. Panta skal ferð með dags fyrirvara. Fyrir sunnudaga og mánudaga þarf pöntun þó að berast á föstudegi. Afpöntun ferðar skal vera með minnst 3 klst. fyrirvara, að öðrum kosti telst ferðin með í uppgjöri. Bílstjórum er heimilt að taka við beiðnum ef aðstæður leyfa. Vaktsími utan dagvinnutíma er 860 0741.
Fastar ferðir eru bundnar við atvinnu og nám og skal gera sérstakt samkomulag um þær milli akstursaðila og þess sem þjónustunnar nýtur. Ef um hópferð er að ræða, skal panta með minnst tveggja sólarhringa fyrirvara.

8. gr.
Gjaldtaka
Um gjaldtöku vegna ferðaþjónustu vísast til gjaldskrárreglna Mosfellsbæjar fyrir ferðaþjónustu.

9. gr.
Þjónustusvæði og fyrirkomulag þjónustu
Þjónustusvæði markast frá Hafnarfirði í suðri að Mosfellsbæ í norðri.
Aksturinn miðast við að og frá anddyri. Bílstjórar aðstoða ekki þar sem snjór, hálka eða aðrar hindranir eru til staðar. Aðstoð skal vera fyrir hendi gerist þess þörf.
Samþykkt í fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar 13. nóvember 2007
Farþegar skulu vera tilbúnir til brottfarar í anddyri brottfararstaðar á umsömdum tíma. Ekki er tryggt að bíll bíði sé farþegi ekki tilbúinn. Ekki er beðið á meðan farþegi sinnir erindi sínu. Bílstjórar sinna ekki sendiferðum fyrir farþega. Farþega sem ekið er til læknis er heimilt að hringja eftir akstri til baka að viðtali loknu, enda var það ekki vitað fyrirfram hve viðtalið tæki langan tíma.

10. gr.
Aðstoð við farþega
Farþegum er heimilt að hafa með sér aðstoðarmann. Greiðslur fyrir aðstoðarmann fer skv. gjaldskrárreglum Mosfellsbæjar um ferðaþjónustu fatlaðra.
Geti farþegi ekki ferðast einsamall án þess að valda ökumanni eða öðrum farþegum óþægindum, getur ferðaþjónustan krafist fylgdarmanns með honum.

III. Kafli
Málsmeðferð, málskotsréttur umsækjanda og gildistími reglna
11. gr.
Ákvörðun
Ákvörðun um ferðaþjónustu fatlaðra taka eftirtaldir:
1. Fjölskyldunefnd.
2. Trúnaðarmálafundur fjölskyldudeildar fjölskyldusviðs.

12. gr.
Hlutverk fjölskyldunefndar
Hlutverk fjölskyldunefndar er:
1. Að gera tillögur að reglum um ferðaþjónustu fatlaðra og hafa eftirlit með því að eftir þeim sé farið.
2. Að fjalla um öll stefnumarkandi mál varðandi ferðaþjónustu fatlaðra.
3. Að fjalla um umsóknir ef um er að ræða undanþágu frá reglum þessum.
4. Að fjalla um ákvarðanir trúnaðarmálafundar fjölskyldudeildar þegar umsækjendur áfrýja til nefndarinnar.

13. gr.
Tímabil samþykktar
Úthlutunartímabil vegna ferðaþjónustu eru tvö á hverju ári, 1. janúar - 31. maí – 1. júní - 31. desember.

14. gr.
Synjun
Umsækjendum sem er synjað um ferðaþjónustu skal svarað skriflega, þar sem forsendur synjunar eru rökstuddar. Jafnframt skal umsækjanda bent á málskotsrétt sinn.

15. gr.
Áfrýjunarákvæði
Umsækjandi um liðveislu getur áfrýjað ákvörðun trúnaðarmálafundar fjölskyldusviðs til fjölskyldunefndar Mosfellsbæjar og skal það gert skriflega innan fjögurra vikna.

16. gr.
Álitsumleitan
Samþykkt í fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar 13. nóvember 2007
Í samræmi við 3.gr. laga um málefni fatlaðra nr. 59/1992 hefur félagsmálaráðuneytið yfirstjórn í málefnum fatlaðra. Umsækjandi sem er ósáttur við ákvörðun fjölskyldunefndar getur leitað til félagsmálaráðuneytisins.

17. gr.
Gildistími
Reglur þessar eru settar skv. 35. gr. og 9. gr. laga um málefni fatlaðra nr. 59/1992 og öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur Mosfellsbæjar um ferðaþjónustu fatlaðra samþykktar í félagsmálanefnd 5. nóvember 1996.


Lagt fyrir FJÖLSKYLDUNEFND MOSFELLSBÆJAR 13. nóvember 2007
Lagt fyrir BÆJARSTJÓRN MOSFELLSBÆJAR 5. desember 2007