Samþykkt um niðurgreiðslu á vistunarkostnaði barna
Samþykkt á 873. fundi bæjarráðs Mosfellsbæjar þann 19. mars 2008
Samþykkt
um niðurgreiðslur á vistunarkostnaði barna í
leikskólum og hjá sjálfstætt starfandi dagforeldrum
Skilgreiningar
Niðurgreiðslur á vistunarkostnaði eru háðar því að foreldrar eða forráðamenn barnsins eigi lögheimili í Mosfellsbæ og einungis er niðurgreitt í ellefu mánuði hvers almanaksár, þ.e. áskilið er að börn taki sumarleyfi a.m.k. einn mánuð á tímabilinu maí til ágúst ár hvert.
Samkvæmt samþykkt þessari eiga tveir hópar foreldra eða forráðamanna rétt á því að sækja um niðurgreiðslur á vistunarkostnaði barna sinna, hvort heldur þær niðurgreiðslur renna til leikskóla bæjarins, leikskóla sem reknir eru af öðrum aðilum eða til foreldra sem vista börn sín hjá sjálfstætt starfandi dagforeldrum fyrir utan tímabilið sem barn er 1 árs og fram að leikskólagöngu þess eða í síðasta lagi 31. júlí árið sem barnið verður 2ja ára.
Hópur 1, niðurgreiðslur til forgangshópa
Foreldrar eða forráðamenn barna í forgangshópi þ.e. börn einstæðra foreldra, börn þar sem báðir foreldrar stunda fullt nám, foreldrar barna sem verða 2ja ára á árinu, hafi þeim ekki boðist pláss fyrir barn sitt á einhverjum leikskóla bæjarins eftir 1. september ár hvert, börn starfsfólks leikskóla Mosfellsbæjar og börn dagforeldra í Mosfellsbæ sem starfa allan daginn (8-9 tíma vistun)
Hópur 2, niðurgreiðslur til annarra
Foreldrar eða forráðamenn barna sem ekki falla undir hóp 1,forgangshóp.
Námskal stundað á skyldunámsstigi, framhaldsskólastigi og eða annað fullt nám sem lánshæft er hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.
Vistunartímabil er almanaksmánuður eða brot úr honum.
1. gr.
Hóparnir sem rétt eiga á niðurgreiddum vistunarkostnaði barna sinna eru því:
1) hópur 1, foreldrar eða forráðamenn barna í forgangshópi.
2) hópur 2, foreldrar eða forráðamenn annarra barna.
Foreldrar eða forráðamenn eru því móttakendur niðurgreiðslu vistunarkostnaðar fyrir hönd þeirra barna sem sótt er um niðurgreiðslu vegna.
Upphæðir niðurgreiðslan skv. samþykkt þessari skulu settar í sérstökum gjaldskrám.
Um vistunarreglur vísast að öðru leyti til reglna um úthlutun leikskólaplássa, reglugerðar um dagforeldra og reglna Mosfellsbæjar um daggæslu barna í heimahúsi. Vistun barna hjá dagforeldrum er alfarið á ábyrgð viðkomandi dagforeldri og foreldris eða forráðamanns barns og samkvæmt þeim reglum sem að ofan er getið.
2. gr.
Sækja skal um niðurgreiðslu á vistunarkostnaði til Mosfellsbæjar á þar til gerðum eyðublöðum og skulu umbeðin gögn fylgja umsókn áður en hún er tekin til efnislegrar afgreiðslu. Niðurgreiðslurnar taka þá gildi næsta mánuð eftir að umsókn er afgreidd.
3. gr.
Niðurgreiðslur fara þannig fram:
1) Til foreldra og forráðamanna barna í leikskólum Mosfellsbæjar er niðurgreiðsla dregin frá vistunargjaldi skv. gjaldskrá hverju sinni um leið og reikningur er gefin út fyrir vistuninni, en reikningar eru gefnir út í upphafi vistunartímabils hverju sinni.
2) Til foreldra og forráðamanna barna í öðrum leikskólum er niðurgreiðslan greidd mánaðarlega til rekstraraðila eftir að reikningar berast sem eru staðfestir af foreldrum og forráðamönnum.
3) Til foreldra og forráðamanna barna hjá dagforeldrum er niðurgreiðslan lögð inn á bankareikning foreldra í síðasta lagi 10. hvers mánaðar, eftir að staðfest yfirlit dagforeldris á að viðkomandi barn sé í vistun hjá dagforeldrinu, hefur borist eftirlitsaðila. Staðfest yfirlit frá dagforeldri skulu berast fyrir 5. hvers mánaðar vegna líðandi mánaðar.
Það er markmið Mosfellsbæjar að greiða styrkinn eigi síðar er 10. dag mánaðar. Staðfest yfirlit sem berast eftir 5. hvers mánaðar verða greidda með næsta tímabili þar á eftir.
4. gr.
Við gildistöku þessarar samþykktar er fyrri samþykkt um sama efni frá 431. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 30. nóvember. 2005 felld úr gildi.
Samþykkt á 571. fundi bæjarstjórnar þann 21. desember 2011
Samþykkt vegna niðurgreiðslu á vistunarkostnaði barna á leikskólum bæjarins, í leikskólum sem reknir eru af öðrum en Mosfellsbæ og hjá sjálfstætt starfandi dagforeldrum.
Skilgreiningar
Niðurgreiðslur á vistunarkostnaði eru háðar því að börnin og foreldrar eða forráðamenn þeirra eigi lögheimili í Mosfellsbæ og einungis er niðurgreitt í ellefu mánuði hvert almanaksár, þ.e. áskilið er að börn taki sumarleyfi a.m.k. einn mánuð á tímabilinu 15. maí til 15. ágúst ár hvert.
Niðurgreiðslur renna til leikskóla bæjarins, leikskóla sem reknir eru af öðrum aðilum eða til dagforeldra sem vista börn sín hjá sjálfstætt starfandi dagforeldrum, sem eru með þjónustusamning við Mosfellsbæ.
Samþykkt
Foreldrar eða forráðamenn eru móttakendur niðurgreiðslu vistunarkostnaðar fyrir hönd þeirra barna sem sótt er um niðurgreiðslu. Upphæðir niðurgreiðslu skv. samþykkt þessari skulu settar í sérstökum gjaldskrám. Niðurgreiðslur eru einungis vegna 8 tíma vistunar eða lengri.
1. gr.
Samkvæmt samþykkt þessari geta foreldrar eða forráðamenn barna, sótt um niðurgreiðslu af almennu gjaldi leikskóla í samræmi við tekjuviðmið sem Mosfellsbær setur. Niðurgreiðslur eru annars vegar 40% af almennu gjaldi og hins vegar 20%. Niðurgreiðslur eru ekki veittar af fæði.
Vistunartímabil er almanaksmánuður eða brot úr honum.
2. gr.
Sambærilega geta foreldrar eða forráðamenn barna hjá dagforeldrum sótt um viðbótarniðurgreiðslur, sem er 20% aukning niðurgreiðslu eða 40% aukning niðurgreiðslu, í samræmi við tekjuviðmið sem Mosfellsbær setur.
Vistunartímabil er almanaksmánuður eða brot úr honum.
Þegar barn verður 2ja ára getur foreldri með barn hjá dagforeldri sótt um sérstaka niðurgreiðslu sem færir gjald foreldra til jafns við almennt gjald foreldra á leikskólum Mosfellsbæjar. Sérstök niðurgreiðsla tekur gildi í næsta mánuði eftir 2ja ára afmæli og lýkur við upphaf leikskólagöngu eða í seinasta lagi 1. september.
3. gr.
Til þess að öðlast rétt til niðurgreiðslu og viðbótarniðurgreiðslu er horft til tekna foreldra, bæði einstaklinga og foreldra í sambúð, sem grundvallast á framlagðri skattskýrslu og/eða staðfestu staðgreiðsluyfirliti síðustu þriggja mánaða.
Tekjuviðmið eru auglýst sérstaklega og skulu kynnt samhliða gjaldskrá. Bæjarráð Mosfellsbæjar staðfestir tekjuviðmið hverju sinni, að öllu jöfnu einu sinni á ári í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar Mosfellsbæjar.
4. gr.
Foreldrar eða forráðamenn sem óska eftir niðurgreiðslum skulu sækja um þær á Íbúagátt Mosfellsbæjar fyrir 20. dag mánaðar og skulu umbeðin gögn fylgja umsókn áður en hún er tekin til efnislegrar afgreiðslu. Niðurgreiðslurnar taka þá gildi næsta mánuð eftir að umsókn er afgreidd. Umsóknir eru ekki afturvirkar.
5. gr.
Niðurgreiðslur fara þannig fram:
1) Til foreldra og forráðamanna barna í leikskólum Mosfellsbæjar er niðurgreiðsla dregin frá vistunargjaldi skv. gjaldskrá hverju sinni um leið og reikningur er gefin út fyrir vistuninni, en reikningar eru gefnir út í upphafi vistunartímabils hverju sinni.
2) Til foreldra og forráðamanna barna í öðrum leikskólum er niðurgreiðslan greidd mánaðarlega til rekstraraðila eftir að reikningar berast sem eru staðfestir af foreldrum og forráðamönnum.
3) Til foreldra og forráðamanna barna hjá dagforeldrum er niðurgreiðslan lögð inn á bankareikning dagforeldra í síðasta lagi 1. virka dag hvers mánaðar, enda liggi fyrir vistunarsamningur.
6. gr.
Samþykkt þessi er staðfest af bæjarstjórn Mosfellsbæjar og gildir um ofangreint og er eldri samþykkt fallin úr gildi.