ÚTBOÐ - HJÚKRUNARHEIMILI MOSFELLSBÆ 
Mosfellsbær, óskar eftir tilboðum í innanhússfrágang vegna byggingar á nýju hjúkrunarheimili að Hlaðhömrum í Mosfellsbæ. Verkið nær til að gera húsið fullfrágengið að innan.
Stærð hússins þegar það er fullbyggt er 2.268 m².
Helstu magntölur eru:
Gifsveggir
Dúklagnir
Loftstokkar
Lampar og ljós
Rafstrengir-taugar
Verkinu skal vera lokið eigi síðar en 15. febrúar 2013.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt á verkefnavef verksins, lykilorð að útboðsgögnum veitir Karl Ásgrímur Ágústsson - karl@thg.is. Einnig er hægt að fá gögnin afhent á geisladisk frá kl. 10:00 mánudaginn 7. maí n.k. á bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar.
Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar, Kjarna Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ fimmtudaginn 31. maí nk. kl. 14:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Sjá útboðsauglýsingu hér
____________________________________________________________________________________
Útboð - jarðvinna
Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í jarðvinnu vegna byggingu fimleikahúss við Íþróttamiðstöðina Varmá.
Verkið felur í sér jarðvinnu og fyllingu á svæðinu. Grunnflötur hússins er 1218 m2
Verkinu skal vera að fullu lokið 12. júní 2012.
Útboðsgögn verða afhend í Þjónustuveri Mosfellsbæjar 2. hæð Þverholti 2 frá og með 27. apríl 2012.
Tilboð skulu hafa borist til Eignasjóðs Mosfellsbæjar 2 hæð Þverholti 2 fyrir 11. maí 2012 kl:14:00. og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Lesa má nánar um verkefnið hér
____________________________________________________________________________________
Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í verkið: 
Eldri deild Varmárskóla,
Klæðning útveggja.
Verkið felst í klæðningu eldri deildar Varmárskóla með stálklæðningu ásamt lagfæringum á steyptum stoðveggjum við skólann. Einnig á að yfirfara og lagfæra alla glugga á húsinu.
Verkinu skal lokið fyrir 15. júní 2012.
(Ath. Það er búið að framlengja verktímann til 15. Júní en í auglýsingunni er talað um 1 maí 2012.)
Helstu magntölur eru:
| Áfellur með gluggum |
320 m |
| Vatnsbretti |
240 m |
| Klæðning flata |
470 m2 |
| Endurnýjun glers |
10 m2 |
| Þéttingar milli timburs og steins |
500 m |
| Málun karma og pósta |
900 m |
| Nýmálun steyptra flata |
25 m2 |
Geisladiskur sem inniheldur útboðsgögn verður afhentur í afgreiðslu Verkfræðistofunnar Eflu á Höfðabakka 9, 110 Reykjavík og í afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar í Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ frá og með þriðjudeginum 6. desember nk.,.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Mosfellsbæjar Þverholti 2, þriðjudaginn 20. desember 2011 kl. 14:00 að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.
____________________________________________________________________________________
Stofnstígur meðfram Vesturlandsvegi
1. áfangi: Aðaltún - Hamrahlíð
Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í gerð malbikaðs göngustígs meðfram Vesturlandsvegi.
Um er að ræða jarðvinnu, lagnavinnu, landmótun og yfirborðsfrágang.
Helstu magntölur:
| Uppgröftur |
2700 m3 |
| Fyllingar |
3400 m3 |
| Fráveitulagnir |
710 m |
| Hitaveitulagnir |
230 m |
| Malbikun |
3920 m2 |
| Þökulagnir |
330 m2 |
| Grassáning |
2800 m2 |
| Trjáplöntur |
1338 stk |
| Uppsetning ljósastólpa |
31 stk |
Áætluð verklok 1.maí 2012.
Útboðsgögn á geisladisk verða afhent í Þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2,2. hæð frá og með þriðjudeginum 18. október 2011.
Ennfremur er hægt að nálgast gögnin hér á vef Mosfellsbæjarmeð því að smella hér.
Tilboðum skal skilað í Þjónustuver Mosfellsbæjar, Þverholti 2,2. hæð fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 1. nóvember 2011, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Umhverfissvið Mosfellsbæjar