Nr. 1150
|
17. desember 2012
|
GJALDSKRÁ
skipulags- og byggingarmála í Mosfellsbæ vegna leyfisveitinga, umsýslu og þjónustu
1. gr.
Fyrir útgáfu leyfa, úttektir, vottorð, skjalagerð, yfirlestur gagna, auglýsingar, kynningar og aðra umsýslu og þjónustu sem Mosfellsbær veitir vegna byggingar- og framkvæmdaleyfisskyldra fram-kvæmda, deiliskipulags og breytinga á skipulagsáætlunum, innheimtir umhverfissvið Mosfellsbæjar í umboði bæjarstjórnar gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.
2. gr.
Fyrir neðangreindar úttektir og með tilvísun til 51. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 skal innheimta gjöld sem hér segir:
|
|
|
kr.
|
|
A)
|
Fyrir úttekt vegna byggingarstjóraskipta,
|
17.100
|
|
B)
|
Fyrir úttekt vegna meistaraskipta,.
|
9.200
|
|
C)
|
Fyrir áfangaúttekt,
|
9.200
|
|
D)
|
Fyrir lokaúttekt,
|
17.100
|
|
E)
|
Fyrir stöðuúttekt, öryggisúttekt,
|
17.100
|
|
F)
|
Fyrir byggingarleyfisgjald, afgreiðslugjald
|
9.700
|
|
G)
|
Fyrir byggingarleyfisgjald, gjald/m³ í húsi
|
97
|
|
H)
|
Fyrir stöðuleyfisgjald fyrir gáma og smáhýsi
|
17.100
|
3. gr.
Byggingarfulltrúi áætlar fjölda áfangaúttekta samkvæmt C-lið 2. gr. áður en byggingarleyfi er gefið út.
4. gr.
Fyrir yfirferð séruppdrátta (burðarþols- og lagnauppdrátta og séruppdrátta aðalhönnuða) skal innheimta gjöld sem hér segir, sbr. 51. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010:
|
|
|
kr.
|
|
A)
|
Vegna einbýlishúsa
|
50.700
|
|
B)
|
Vegna par- og raðhúsa, pr. íbúð
|
29.400
|
|
C)
|
Vegna fjölbýlishúsa:
|
|
|
|
Fyrir fyrstu 5 íbúðirnar, pr. íbúð
|
14.100
|
|
|
fyrir 6. – 19. íbúð, pr. íbúð
|
5.900
|
|
|
fyrir 20. íbúð og hærri raðtölu íbúðar, pr. íbúð
|
3.500
|
|
D)
|
Annað húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahús < 2.000 m³ brúttó
|
78.800
|
|
E)
|
Annað húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahús 2.000 - 10.000 m³ brúttó
|
91.800
|
|
F)
|
Annað húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahús > 10.000 m³ brúttó
|
105.900
|
|
G)
|
Aðrar minni byggingar, s.s. viðbygging, bílgeymsla, anddyri, sólstofa. o.fl.
|
18.900
|
|
H)
|
Breyting á innra skipulagi atvinnuhúsnæðis
|
35.500
|
|
I)
|
Breyting á innra skipulagi sérbýlis, klæðningu húss, svalaskýli eða lóð
|
10.000
|
Vegna aðkeypts yfirlesturs á séruppdráttum verður innheimt sérstaklega samkvæmt reikningi hverju sinni.
5. gr.
Fyrir neðangreind vottorð, skjalagerð og yfirlestur ýmiss konar og með tilvísun til 51. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 skal innheimta gjöld sem hér segir:
|
|
|
kr.
|
|
A)
|
Lokaúttektarvottorð/úttekt,
|
26.200
|
|
B)
|
Fokheldisvottorð/úttekt,
|
26.200
|
|
C)
|
Stöðuvottorð/úttekt,
|
26.200
|
|
D)
|
Stofnskjalagerð, nýskráning, stór
|
24.000
|
|
E)
|
Stofnskjalagerð, nýskráning, lítil
|
12.000
|
|
F)
|
Yfirlestur eignaskiptayfirlýsinga, stór
|
31.700
|
|
G)
|
Yfirlestur eignaskiptayfirlýsinga, lítil
|
15.900
|
|
H)
|
Samrunaskjalagerð
|
23.900
|
|
I)
|
Útsetning húss og lóðar, með tékkmælingu
|
87.800
|
|
J)
|
Útsetning húss og lóðar, einföld útsetning
|
48.000
|
6. gr.
Fyrir hverja skoðun/skoðunarskýrslu byggingarfulltrúa á áður gerðum íbúðum skal innheimta skoðunargjald sem hér segir:
|
Skoðunargjald pr. íbúð í fjöleignarhúsi
|
kr. 17.900
|
|
Skoðunargjald fyrir einbýlis- og sérbýlishús.
|
kr. 26.400
|
7. gr.
Vegna grenndarkynninga skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, framkvæmdaleyfa skv. 13. og 14. gr. og vegna deiliskipulags og breytinga á skipulagsáætlunum, sbr. 2. mgr. 20. gr. og 2. mgr. 38. gr. sömu laga, skal innheimta gjöld sem hér segir:
|
|
|
kr.
|
|
A)
|
A) Fyrir grenndarkynningu á leyfisumsókn
|
21.300
|
|
B)
|
Fyrir afhendingu grunnlandupplýsinga fyrir skipulagsvinnu
|
10.600
|
|
C)
|
Vegna breytingar á aðalskipulagi, sbr. 2. mgr. 20. gr. og 36. gr.:
|
|
|
|
C1) Gerð tillögu að breytingu
|
168.600[1]
|
|
|
C2)Umsýslu- og auglýsingakostnaður
|
126.500
|
|
D)
|
Vegna deiliskipulags:
|
|
|
|
D1) Gerð tillögu að nýju deiliskipulagi eða umfangsmiklum breytingum á deiliskipulagi
|
skv. samningi
|
|
|
D2) Gerð tillögu að einföldum breytingum
|
84.300
|
|
|
D3) Umsýslu- og kynningarkostnaður v. nýs deiliskipulags
|
105.400
|
|
|
D4) Umsýslu- og auglýsingakostnaður v. breytinga skv. 1. mgr. 43. gr.
|
63.200
|
|
|
D5) Umsýslu og kynningarkostnaður v. breytinga skv. 2. mgr. 43. gr.
|
31.800
|
|
E)
|
Vegna framkvæmdaleyfa:
|
|
|
|
E1) Leyfisgjald vegna framkvæmdaleyfis skv. 14. gr.
|
94.300
|
|
|
E2) Leyfisgjald vegna annarra framkvæmdaleyfa
|
58.900
|
|
|
E3) Eftirlit umfram eina ferð sem er innifalin í E1 og E2; pr. ferð
|
21.100
|
[1] Eða samkvæmt samningi.
8. gr.
Umhverfissvið annast innheimtu allra gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari skv. 51. gr. laga um mannvirki og 20. gr. skipulagslaga.
9. gr.
Gjalddagi gjalda skv. 2. gr. er við beiðni um úttekt.
Gjalddagi gjalda skv. 4. gr. er við innlögn hönnunargagna til yfirferðar
Gjalddagi vottorða skv. 5. gr. er við afhendingu þeirra. Óheimilt er að afhenda fokheldisvottorð fyrr en gjald hefur verið greitt.
Gjalddagi skoðunargjalds, skv. 5. gr. er við beiðni um skoðun.
|
Gjalddagi gjalda skv. 7. gr. er sem hér segir:
|
|
|
Skv. lið A:
|
Áður en grenndarkynning fer fram.
|
|
|
Skv. lið B:
|
Við afhendingu gagna.
|
|
|
Skv. liðum C1, D1 og D2:
|
Þegar tillaga er fullgerð.
|
|
|
Skv. liðum C2, D3, D4 og D5:
|
Við samþykkt tillögu til auglýsingar eða grenndarkynningar
|
|
|
Skv. liðum E1 og E2:
|
Við útgáfu leyfis.
|
|
|
Skv. lið E3:
|
Við útgáfu leyfis, skv. áætlun um fjölda ferða.
|
10. gr.
Gjöld vegna áfangaúttekta skal endurgreiða komi ekki til verkframkvæmda á gildistíma byggingarleyfis.
11. gr.
Virðisaukaskattur leggst ekki á gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.
12. gr.
Gjöld innheimt samkvæmt gjaldskrá þessari skulu renna til greiðslu sannanlegs kostnaðar við einstaka verkþætti gjaldskrárinnar.
13. gr.
Gjaldskrá þessi, sem öðlast þegar gildi, er samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar með heimild í 20. gr. og 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 51. gr. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá um sama efni nr. 1334/2011.
Mosfellsbæ, 17. desember 2012
Stefán Ó. Jónsson
framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs
B-deild - Útgáfudagur 20. desember 2012