Endurskoðun Aðalskipulags

Takið þátt í að móta Mosfellsbæ framtíðarinnar

Vinna við endurskoðun aðalskipulags Mosfellsbæjar 2002-2024 er langt á veg komin og leggur bæjarstjórn áherslu á virkt samráð við íbúa sveitarfélagsins um endurskoðun aðalskipulagsins. Því er kallað eftir hugmyndum, tillögum og athugasemdum frá íbúum.

Til þess að auðvelda íbúum sveitarfélagsins þátttöku í slíku samráði, hefur verið opnuð skipulagsgátt hér á heimasíðu Mosfellsbæjar, mos.is, undir flipanum skipulagsmál/endurskoðun aðalskipulags.

Þar munu bæjarbúar geta fylgst  með framvindu endurskoðunarinnar og tjáð hug sinn um þær tillögur og álitamál sem upp kunna að koma.  Auk þess verður íbúum gefinn kostur á að hitta kjörna bæjarfulltrúa og skipulagsráðgjafa á óformlegum fundum á fyrirfram auglýstum tímum.

Einnig verður efnt til formlegra íbúafunda eftir því sem verkinu miðar áfram og tilefni verður til. Loks hefur verið virkjað sérstakt netfang; adalskipulag[hja]mos.is þar sem íbúum og öðrum áhugasömum gefst kostur á að senda inn athugasemdir, tillögur og hugmyndir tengdar endurskoðun aðalskipulagsins.

Í upphafi verks er aðaláherslan lögð á endurskoðun  á stefnu og markmiðum sveitarstjórnar í þeim málaflokkum sem aðalskipulagið nær til, þ. e. landnotkun, samgöngum, þjónustukerfi og umhverfismálum. Í þeirri vinnu verða  m. a. eftirfarandi spurningar áleitnar: 

Hvaða eiginleika og yfirbragð á byggðin að hafa?
Hverju þarf að gera ráð fyrir gagnvart atvinnulífinu?
Hverju þarf að gera ráð fyrir gagnvart byggðaþróun í þéttbýli og dreifbýli?
Hvað þarf að verja og hvað þarf að vernda?
Náttúruvernd, minjavernd, auðlindavernd.
Hvernig má bæta lífsgæði íbúanna?

Mosfellingar eru hvattir til að taka þátt í að móta framtíð Mosfellsbæjar og leggja sitt af mörkum til þess að gera góðan bæ enn betri.

Við hvetjum ykkur til að senda póst á adalskipulag[hja]mos.is

Ýmis gögn er varða endurskoðun aðalskipulags:

Þéttbýlisuppdráttur(drög) - pdf, 3,7 MB
Sveitarfélagsuppdráttur(drög) - pdf, 4,1 MB
Greinargerð– Stefna og skipulagsákvæði (drög) pdf, 2,6 MB

28.5.2010

Drög að endurskoðuðu aðalskipulagi kynnt

Markmiðið með kynningunni er að upplýsa bæjarbúa og umsagnaraðila um stöðu verksins, og gefa þeim kost á að koma á framfæri athugasemdum og ábendingum sem síðan verði hægt að hafa til hliðsjónar við fullvinnslu tilögunnar í upphafi nýs kjörtímabils.
1.3.2010

Samráðsfundur með íbúum um endurskoðun aðalskipulags

HestarSkipulags- og byggingarnefnd boðar til samráðsfundar með íbúum Mosfellsbæjar í Lágafellsskóla þriðjudaginn 2. mars kl. 20. Umræðuefnið er nýtt hesthúsahverfi í Mosfellsbæ.
30.11.2009

Nóv. 09: Skýrsla um umferðarmál

Í nóvember s.l. var lögð fram skýrsla Almennu Verkfræðistofunnar um „Umferðarmál í aðalskipulagi Mosfellsbæjar.“ Í skýrslunni er einkum fjallað um Vesturlandsveg og áhrif hans á byggðina. Skoðaðir eru ýmsir valkostir um útfærslur gatnamóta, m.a. með hugsanlegri „stokkalausn“
17.10.2009

Skipulagsþing 17. okt. 2009

Bærinn og framtíðin, dreifimiðiSkipulagsþingið var haldið samkvæmt ákvörðun skipulags- og byggingarnefndar í þeim tilgangi að leita eftir hugmyndum og skoðunum íbúa og hafa þær til hliðsjónar við endurskoðun aðalskipulagsins.

14.10.2009

Áfangaskýrsla 2: Stefna aðalskipulagsins

Í október 2008 var sendur út spurningalisti til helstu lykilstjórnenda Mosfellsbæjar til þess að fá fram upplýsingar um stöðu og árangur í þeim málaflokkun sem fjallað var um í stefnumörkun gildandi aðalskipulags
14.10.2009

Áfangaskýrsla 1: Forsendur og stefna aðalskipulagsins

Í upphafi vinnu að endurskoðun aðalskipulagsins var lögð fram greinargerð um forsendur endurskoðunarinnar, Áfangaskýrsla 1. Þar er fjallað um ýmsar tölulegar forsendur og hvernig þær hafa þróast frá samþykkt aðalskipulagsins 2003.