Aðalskipulag

Aðalskipulag er skipulagsáætlun fyrir eitt sveitarfélag og skal taka til alls lands viðkomandi sveitarfélags. Í aðalskipulagi setur sveitarstjórn fram stefnu sína um landnotkun, byggðaþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál í sveitarfélaginu til minnst 12 ára. Í aðalskipulagi er lagður grundvöllur fyrir deiliskipulagsgerð einstakra svæða í sveitarfélaginu.

Aðalskipulag skal endurskoða á fjögurra ára fresti. Nú er í gangi endurskoðun aðalskipulags Mosfellsbæjar sem gert er ráð fyrir að ljúki um mitt ár 2011.

Gildandi aðalskipulag Mosfellsbæjar 2002 - 2024 var samþykkt í bæjarstjórn 12 febrúar 2003 og staðfest af umhverfisráðherra 8. júlí 2003.

Breytingar á aðalskipulagi

 Frá upphaflegri samþykkt aðalskipulagsins hafa verið gerðar á því eftirtaldar breytingar (Ath: nýjasta breytingin efst):