Endurskoðun Aðalskipulags

30. apríl 2012: Opið hús og kynningarfundur um tillögu að aðalskipulagi

Í fyrstu og annarri viku maí mun Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar gangast fyrir kynningu á tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi bæjarins. Um er að ræða lögbundna forkynningu á tillögunni fyrir íbúum og umsagnaraðilum, þ.á.m. nágrannasveitarfélögum. Að forkynningu lokinni mun bæjarstjórn síðan taka tillöguna til afgreiðslu og samþykkja hana til formlegrar auglýsingar samkvæmt skipulagslögum - eftir atvikum með einhverjum breytingum í ljósi þess sem fram kann að koma í tengslum við forkynninguna.

Kynningin nú í maí verður tvíþætt; í fyrsta lagi verður opið hús í Krikaskóla fimmtudaginn 3. maí kl. 17-21, og í öðru lagi verður almennur kynningarfundur í Hlégarði þriðjudaginn 8. maí kl. 17. Sjá nánar í tilkynningu hér neðar.

Mosfellingar eru hvattir til að fjölmenna á kynningarnar í Krikaskóla 3. maí og Hlégarði 8. maí, til að skyggnast inn í framtíð bæjarins og og taka þátt í að móta hana. Vakin er athygli á því að hægt er að skoða tillöguna hér á heimasíðunni (sjá tengla hér að neðan), þannig að áhugasamir geta kynnt sér hana fyrirfram og undirbúið sig þannig áður en þeir koma á kynninguna.

(Þar sem aðalskipulagið er í vinnslu taka skipulagsgögnin stöðugum breytingum, en eftirfarandi eru tenglar á nýjustu útgáfur þeirra):

Þéttbýlisuppdráttur(drög 2.5.2012) - pdf, 3,4 MB
Sveitarfélagsuppdráttur(drög 2.5.2012) - pdf, 7,5 MB
Greinargerð og umhverfisskýrsla (drög 2.5.2012) - pdf 3,3 MB

Kynningarefni:

Glærusýning frá almennum fundi 8. maí

Eldri gögn:

Áf.skýrsla 1: Forsendur
Áf.skýrsla 2: Stefna
Áf.skýrsla 3: Matslýsing
Áf.skýrsla 4: Verkefnislýsing skv. 30. gr.


FRÉTTIR OG TILKYNNINGAR

3.5.2012

Endurskoðun aðalskipulags: Kynningarfundur í Hlégarði 8. maí

opið hús Í fyrstu og annarri viku maí gengst Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar fyrir kynningu á tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi bæjarins. Vinna við endurskoðunina hófst á síðasta kjörtímabili og er stefnt að því að henni ljúki með endanlegri samþykkt skipulagsins síðar á þessu ári.

13.7.2011

Endurskoðun aðalskipulags, verkefnislýsing skv. 30. gr.

13.7.2011: Í samræmi við 30. gr. nýrra skipulagslaga nr. 123/2010 er lögð fram til kynningar fyrir almenningi og umsagnaraðilum lýsing á skipulagsverkefninu "Endurskoðun aðalskipulags Mosfellsbæjar"

28.5.2010

Drög að endurskoðuðu aðalskipulagi kynnt

Markmiðið með kynningunni er að upplýsa bæjarbúa og umsagnaraðila um stöðu verksins, og gefa þeim kost á að koma á framfæri athugasemdum og ábendingum sem síðan verði hægt að hafa til hliðsjónar við fullvinnslu tilögunnar í upphafi nýs kjörtímabils.
1.3.2010

Samráðsfundur með íbúum um endurskoðun aðalskipulags

HestarSkipulags- og byggingarnefnd boðar til samráðsfundar með íbúum Mosfellsbæjar í Lágafellsskóla þriðjudaginn 2. mars kl. 20. Umræðuefnið er nýtt hesthúsahverfi í Mosfellsbæ.
30.11.2009

Nóv. 09: Skýrsla um umferðarmál

Í nóvember s.l. var lögð fram skýrsla Almennu Verkfræðistofunnar um „Umferðarmál í aðalskipulagi Mosfellsbæjar.“ Í skýrslunni er einkum fjallað um Vesturlandsveg og áhrif hans á byggðina. Skoðaðir eru ýmsir valkostir um útfærslur gatnamóta, m.a. með hugsanlegri „stokkalausn“ næst miðbænum. Í skýrslunni er einnig fjallað um ....
17.10.2009

Skipulagsþing 17. okt. 2009

Bærinn og framtíðin, dreifimiðiSkipulagsþingið var haldið samkvæmt ákvörðun skipulags- og byggingarnefndar í þeim tilgangi að leita eftir hugmyndum og skoðunum íbúa og hafa þær til hliðsjónar við endurskoðun aðalskipulagsins.

14.10.2009

Áfangaskýrsla 2: Stefna aðalskipulagsins

Í október 2008 var sendur út spurningalisti til helstu lykilstjórnenda Mosfellsbæjar til þess að fá fram upplýsingar um stöðu og árangur í þeim málaflokkun sem fjallað var um í stefnumörkun gildandi aðalskipulags
14.10.2009

Áfangaskýrsla 1: Forsendur og stefna aðalskipulagsins

Í upphafi vinnu að endurskoðun aðalskipulagsins var lögð fram greinargerð um forsendur endurskoðunarinnar, Áfangaskýrsla 1. Þar er fjallað um ýmsar tölulegar forsendur og hvernig þær hafa þróast frá samþykkt aðalskipulagsins 2003.