Helgafellsland

Helgafellshverfi-3D-01Helgafellshverfi er rúmlega 1.000 íbúða hverfi suðvestan undir Helgafelli, á skjólgóðum útsýnisstað. Upphaf á uppbyggingu hverfisins má rekja til sameiginlegrar viljayfirlýsingar  landeigenda og bæjaryfirvalda í nóvember 2005, en þá hafði þegar farið fram arkitektasamkeppni um rammaskipulag hverfisins, og byggðist viljayfirlýsingin m.a. á niðurstöðu samkeppninnar, þ.e. verðlaunatillögu Teiknistofu arkitekta, Gylfa Guðjónssonar og félaga.

Í samkomulagi landeigenda og bæjarins fólst að landeigendur myndu annast og kosta deiliskipulag hverfisins og sömuleiðis alla gatnagerð, lagningu stíga, frágang opinna svæða og leikvalla, en bærinn myndi á ákveðnu stigi taka við þessum mannvirkjum og annast síðan rekstur þeirra og viðhald. Lóðir í hverfinu yrðu leigulóðir í eigu bæjarins, en landeigendurnir ættu í upphafi byggingarréttinn og seldu hann til væntanlegra byggjenda. Af sölu byggingarréttarins gengi ákveðin upphæð per íbúð til bæjarins, til að standa straum af uppbyggingu skóla og leikskóla í hverfinu.

Deiliskipulag hverfisins var unnið í áföngum, og var á árunum 2006 - '07 lokið við deiliskipulag fjögurra áfanga, auk deiliskipulags Helgafellsvegar. Deiliskipulag 5. áfangans efst í hverfinu var komið vel á veg en fór í biðstöðu í árslok 2008, og einnig er eftir að gera deiliskipulag fyrir reit vestan við Helgafell, næst Vesturlandsvegi.

Í fyrsta áfanga er um að ræða miðjuna í hverfinu, sem nefnd hefur verið "Augað" vegna lögunar helstu umferðargatna sem ráða meginformi hverfishlutans. Í Auganu er þéttasta byggðin og eru þar eingöngu fjölbýlishús, auk grunn- og leikskóla. Arkitektastofa Gylfa Guðjónssonar gerði deiliskipulag fyrsta áfangans, en höfundur 2. - 4. áfanga er Ívar Örn Guðmundsson arkitekt. Í þeim áföngum er fyrst og fremst um að ræða sérbýlishús af ýmsum gerðum.

Þegar hrunið reið yfir landið í október 2008 var gatnagerð að mestu lokið í 1. - 3. skipulagsáfanga Helgafellshverfis og voru þar þá byggingarhæfar lóðir undir um 640 íbúðir. Bygging var þó einungis hafin á hverfandi hluta þeirra íbúða og má heita að uppbygging hverfisins hafi verið í kyrrstöðu allar götur síðan þá.


SAMÞYKKT DEILISKIPULAG 1. - 4. ÁFANGA OG HELGAFELLSVEGAR (PDF-skjöl)

1. áfangi (Augað), samþykkt 13. desember 2006:
     Deiliskipulagsuppdráttur (1,54 MB) - Skýringaruppdráttur (1,95 MB) - Greinargerð og skilmálar (2,39 MB)

2. áfangi, samþykkt 13. desember 2006:
     Deiliskipulagsuppdráttur
(1,76 MB) - Skýringaruppdráttur (2,01 MB) - Greinargerð og skilmálar (1,80 MB)
     Breyting samþ. 7. nóvember 2007: Lóð fyrir spennistöð  (1,29 MB)
     Breyting samþ. 17. júlí 2007: Bergrúnargata 7-9  (1,57 MB)

3. áfangi, samþykkt 11. apríl 2007:
     Deiliskipulagsuppdráttur (5,29 MB) - Skýringaruppdráttur (4,45 MB) - Greinargerð og skilmálar (1,66 MB)
     Breyting samþ. 4. júní 2008: Sameining lóða við Snæfríðargötu  (2,97 MB)

4. áfangi, samþykkt 26. september 2007:
     Deiliskipulagsuppdráttur (3,83 MB) - Skýringaruppdráttur (4,24 MB) - Greinargerð og skilmálar (4,25 MB)

Deiliskipulag Helgafellsvegar, samþykkt 29. ágúst 2007:
     Deiliskipulagsuppdráttur  (4,02 MB) - Skýringarmyndir  (2,76 MB)  - Umhverfisskýrsla  (1,66 MB)


ÝMIS GÖGN UM SKIPULAGIÐ

Október 2008:  Ósk um skil á lóðum - upplýsingar  (.pdf - 12kb)

Febrúar 2007:  Helgafellsvegur, - kynning á útliti og legu vegarins  PDF-skjal (3,6 Mb)
    með loftmyndum, langs- og þversniðum og ljósmyndum fyrir og eftir tilkomu vegarins.

Febrúar 2007:  Gögn um áætlaðan umferðarhávaða og hljóðvist í nágrenni vegarins   PDF-skjal (5Mb)

Febrúar 2007:  Helgafellshverfi, Varmársvæði og Álafosskvos. tölvugerðar módelmyndir  PDF-skjal (1 Mb)


TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
(Lóðarblöð á AutoCad- og dxf-formi eru samfelld teikning af viðkomandi skipulagsáföngum, með öllum upplýsingum sem eru á einstökum mæli- og hæðarblöðum öðrum en hnitaskrám. Mæli- og hæðarblöð eru í blaðstærð A3 og sýna í mælikvarða 1:500 svæði sem getur náð yfir eina stóra lóð eða fleiri smærri allt eftir því hvað passar á blaðið.
Á mæliblöðum eru lóðir málsettar og á þeim er skrá yfir hnit allra punkta á lóðarmörkum í Ísnet93 hnitakerfinu. Á hæðarblöðum eru sýndir byggingarreitir, hæðarkótar á lóðarmörkum og leiðbeinandi gólfkótar húsa, staðsetning og hæð vatns- og frárennslisheimæða, bílastæði, götur og stígar og kvaðir ef einhverjar eru.)

Lóðarblöð fyrir skipulagsáfanga 1 - 3:

Á AutoCad-formi (0,8MB)
Á dxf-formi (3 MB)

Mæli- og lóðarblöð fyrir 1. - 3. skipulagsáfanga (pdf-skjöl):

1. áfangi (Augað) - Mæliblöð .-. Hæðar- og lóðarblöð
2. áfangi - Mæliblöð .-. Hæðar- og lóðarblöð
3. áfangi - Mæliblöð .-. Hæðar- og lóðarblöð

Upplýsingablað um Losun regnvatns í hverfinu Pdf - 895kb).