Staðardagskrá 21
Haustið 1998 ákvað bæjarstjórn Mosfellsbæjar að vinna að Staðardagskrá 21. Síðan hefur verið lögð fram skýrsla um stöðu mála í bæjarfélaginu og markmið um sjálfbæra þróun verið samþykkt. Ýmis verkefni hafa verið unnin undir merkjum Staðardagskrár 21.
Í mars árið 2000 fékk Mosfellsbær viðurkenningu fyrir þátttöku almennings í Staðardagskrá 21.
Í nóvember árið 2000 voru markmið og framkvæmdaáætlun fyrir Staðardagskrá 21 í Mosfellsbæ samþykkt í verkefnisstjórn.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti á 319. fundi sínum þann 31. janúar 2001, að undirrita svokallaða Ólafsvíkuryfirlýsingu (.pdf -81kb) og hafa þar með sjálfbæra þróun að leiðarljósi við ákvarðanatöku sína.
Í apríl 2001 voru svo Staðardagskrárverðlaunin 2001 veitt Mosfellsbæ. Í greinargerð um verðlaunin kom eftirfarandi fram:
„Það sem einkennt hefur starfið í Mosfellsbæ öðru fremur er sú mikla áhersla sem lögð hefur verið á miðlun upplýsinga til almennings og á þátttöku almennings á öllum stigum starfsins. Útgáfa fréttabréfsins Sólargeislans hefur verið mikilvægur þáttur í því að treysta tengslin við almenning. Sólargeislinn er án nokkurs vafa vandaðasta kynningarefnið fyrir almenning sem gefið hefur verið út um þessi mál hérlendis.”
Í byrjun árs 2008 var ráðinn til starfa hjá Mosfellsbæ umhverfisstjóri sem m.a. mun hafa umsjón með Staðardagskrá 21, stefnumörkun og kynningarstarfi í tengslum við umhverfismál og mótun opinna svæða og stefnumörkun hvað varðar nýtingu og hirðingu þeirra.
Í framhaldinu var ákveðið að ráðast í endurskoðun á markmiðum Staðardagskrár 21 fyrir Mosfellsbæ. Skipaður var stýrihópur til að starfa með umhverfisstjóra að endurskoðun verkefnisins.
Verkefnisstjórn Staðardagskrár 21 í Mosfellsbæ skipa: Jóhanna B. Magnúsdóttir, Herdís Sigurjónsdóttir, Óðinn Pétur Vigfússonog Gerður Pálsdóttir
Endurskoðun Staðardagskrár 21 fyrir Mosfellsbæ eru nú í gangi. Í lok ágúst 2009 var gefinn út bæklingur um Staðardagskrá 21 í Mosfellsbæ og hann borinn í hús.
Bæklingnum má fletta með því að smella á mynd hér að neðan: