Lesa frétt

30.6.2010

Frjálsíþróttakrakkar á Gautaborgarleikana

Síðastliðna nótt lagði af stað glæsilegur hópur frá Aftureldingu til Gautaborgar til að taka þátt í einum stærsta frjálsíþróttaviðburði sem börnum og ungmennum er boðið til.
Hópurinn samanstendur af 12 keppendum, einum fararstjóra og einum þjálfara.
Á meðfylgjandi mynd má sjá hópinn sem fór sl. nótt ásamt Hlyn þjálfara og Elínborgu fararstjóra en á myndina vantar tvo iðkendur sem lagðir voru af stað á undan.
Hægt er að fylgjast með mótinum: http://vuspelen.web.surftown.se/index.php

Góða ferð og gangi ykkur vel Svíþjóðarfarar!