Ungmennafélag Íslands mun í samvinnu við Ungmennafélagið Aftureldingu starfrækja frjálsíþróttaskóla í Mosfellsbæ dagana 19.-23. júlí. Þetta verður þriðja sumarið í röð sem skólinn starfar og hefur aðsóknin að honum vaxið jafnt og þétt frá upphafi. Skólinn verður á átta stöðum víðs vegar um landið í sumar.
Litið er á skólann sem góðan undirbúning fyrir þátttöku á unglingalandsmóti UMFÍ. Frjálsíþróttaskólinn er spennandi tækifæri fyrir ungmenni sem vilja reyna sig eða efla í frjálsum íþróttum. Auk íþróttaæfinga verða kvöldvökur, gönguferðir og ýmsar óvæntar uppákomur.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu UMFÍ
www.umfi.is og í síma 540-2900