Lesa frétt

15.7.2010

Íslensk glíma - námskeið í ágúst

Í ágústmánuði ætlar Hlynur Guðmundsson frjálsíþróttaþjálfari að bjóða öllum 6-12 ára börnum í Mosfellsbæ (og næsta nágrenni) að koma og reyna fyrir sér íslenskri glímu.
Gerð hafa verið mörg belti fyrir þennan aldur og verður Hlynur með þau á Varmárvelli þriðju-, miðviku- og fimmtudaga allan ágústmánuð milli kl: 14:00 til 15:30. Hlynur verður á staðnum og leiðbeinir.  
Þátttökugjald er kr. 3.000, innifalið að glíma alla þessa daga í ágúst. Greiða má þátttökugjald inn á 0116-05-002166, kt: 211062-2589.
Ef áhugahópur verður til, er hugmyndin að glíma oftar næsta vetur. 
Netfang: hlygson@mmedia.is, sími 6993456.