Menningarmálanefnd auglýsir eftir aðilum sem óska eftir fjárframlögum
frá nefndinni vegna listviðburða og menningarmála árið 2012. Hér undir
falla fjárframlög til margvíslegrar menningarstarfsemi í bænum.
Reglur um úthlutun
- Rétt til að sækja um framlög til nefndarinnar hafa listamenn, samtök listamanna og félagasamtök, sem vinna að listum og menningarmálum í Mosfellsbæ.
- Fjárframlög til lista og menningarmála eru af tvennum toga:
a) Verkefnastyrkir til einstakra verkefna.
b) Starfstyrkir til félagasamtaka á sviði lista og menningarmála í Mosfellsbæ.
- Nauðsynlegt er að umsækjendur tilgreini nákvæmlega til hvaða verka ætlað er að verja framlögunum.
- Umsóknum skal skilað í síðasta lagi þann 1. mars 2012
- Senda skal inn umsóknir í gegnum heimasíðu Mosfellsbæjar.
- Nefndin áskilur sér rétt til að hafna umsókn umsækjanda að hluta eða alfarið.
- Niðurstöður menningarmálanefndar Mosfellsbæjar munu liggja fyrir eigi síðar en 30. mars 2012 og eru háðar samþykki bæjarstjórnar.
Sjá auglýsingu hér
Menningarsvið Mosfellsbæjar
Þverholti 2
270 Mosfellsbær