
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga fyrir árið 2009.
Almenningur og fyrirtæki geta tilnefnt þau svæði eða aðila í Mosfellsbæ sem þeim finnst skara framúr í umhverfismálum.
Gjaldgengir eru allir garðar, götur, lóðir, stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar í Mosfellsbæ.
Eyðublöð til tilnefningar má senda rafrænt hér... eða á eyðublöðum sem fást í Þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 1. hæð.
Tilnefningum skal skilað rafrænt eða til Þjónustuvers Mosfellsbæjar fyrir 15. júlí 2009 og verða viðurkenningarnar veittar á bæjarhátíðinni “Í túninu heima” 28.-30 ágúst nk.
Það sem umhverfisnefnd Mosfellsbæjar hefur til hliðsjónar við val á tilnefningum er meðfylgjandi gátlisti, smelltu hér.......