Starfsfólk bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar tók í dag á móti fjölmörgum glöðum krökkum sem sungu hástöfum fyrir starfsfólk, gesti og gangandi í tilefni Öskudagsins. Lagavalið var fjölbreytilegt, frumsamin lög , þekkt lög, gömul og ný ma. hið nýkjörna eurovisionlag "Mundu eftir mér" eftir mosfellinginn Grétu Salóme Stefánsdóttur, sem er framlag Íslands til Eurovision í Aserbaísjan 2012.
Allt var þetta gert með miklum glæsibrag og skörtuðu krakkarnir skemmtilegum og litríkum búningum og greinilegt var að þau hafa mikið ímyndunarafl í búningagerð.