Lesa frétt

16.7.2010

Sumartorg í dag kl. 16:00 - Klifurturn, sparkmörk og fleira!

Í dag munu skátarnir og Afturelding sjá um skemmtilegheit á torginu okkar!

Skátarnir verða með sex metra háan klifurturn sem allir hugaðir mega klifra í!
Auk þess ætla þeir að grilla brauð og popp á staðnum og kenna hverjum sem vill hvernig skal tálga spýtu.

Afturelding mætir með sparkmörk og fótbolta á staðinn og verða með ýmsar þrautir - fótboltamyndir í verðlaun fyrir alla sem taka þátt!
Einnig munu ýmsir fótboltasnillingar sína listir sínar og leiðbeina hverjum sem vilja.

Missið ekki af þessu - mætum á torgið í góða veðrinu !