Lesa frétt

15.7.2010

Fullt út úr dyrum á tónleikum á miðvikudagskvöld

Fullt var út úr dyrum á tónleikunum ,,Manstu gamla daga" á Bókasafni Mosfellsbæjar í gærkveldi. Ætla má að ríflega 130 manns hafi sótt viðburðinn og reyndist það starfsmönnum bókasafnsins mikil þraut að finna sæti fyrir allan fjöldann.

Haft er eftir Sigurði Ingva Snorrasyni klarínettuleikara í lokaatriði tónleikanna: ,,Það er ekki vegna stærileika að við blásarar stöndum - heldur einfaldlega vegna þess að öll sæti í húsinu eru í notkun, sem er mjög gleðilegt!"

Alls komu fram sautján flytjendur, ýmist mosfellskir eða þá tengdir Mosfellsbæ á einn eða annan hátt.
Bæði var um að ræða þaulreynt tónlistarfólk og ungt fólk í tónlistarnámi. Flutt voru dægurlög frá árunum 1940-1960.

Mikil stemning var í salnum og í hléi var boðið upp á kakó og kleinur. Í lok tónleikanna var hljómsveitin klöppuð upp og var þá titillag hljómleikanna, ,,Manstu gamla daga?" endurtekið við mikinn fögnuð.

Það voru því ánægðir áheyrendur sem héldu út í sumarregnið á miðvikudagskvöld.