
Í dag býðst Mosfellingum að koma á miðbæjartorgið og skoða vísindasýninguna "Tilraunalandið" sem staðsett hefur verið við Norræna húsið. Sýningin opnar kl. 15.
Tilraunalandið hefur hlotið mikið lof og margir skólar farið í heimsókn í Norræna húsið. Í sumar fer sýningin á flakk og kemur m.a. við í Mosfellsbæ. Hér má sjá umfjöllun Morgunblaðsins:
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/04/29/tilraunalandid/
Fróðleg og skemmtileg sýning fyrir unga jafnt sem aldna!