Laus störf

22.5.2013

Lausar stöður í Krikaskóla, Mosfellsbæ

logo KrikaskolaKrikaskóli er leik- og grunnskóli fyrir börn á aldrinum 1-9 ára og starfsemin tekur mið af skólastefnu Mosfellsbæjar um heildstætt uppeldis- og skólastarf í leik- og grunnskólum. Skólaárið 2013-2014 verða börn á aldrinum 2ja-9 ára í skólanum. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér skólastefnu skólans á heimasíðu hans áður en þeir sækja um starf.

14.5.2013

LEIÐBEINANDI Í FÉLAGSSTARFI ELDRI BORGARA

Laus er 50% staða leiðbeinanda í félagsstarfi eldri borgara frá miðjum ágúst 2013. Vinnutíminn er frá 12:00 til 16:00 virka daga. Starfið felst í að leiðbeina á sviði hannyrða, almennrar listsköpunnar og handverks. Starfsemin fer fram nýuppgerðu húsnæði þjónustumiðstöðvarinnar að Eirhömrum.

3.5.2013

Kennarastöður við Lágafellsskóla Mosfellsbæ 2013 – 2014

logo_lagafellsskoliVegna námsleyfa og fjölgunar bekkja vantar kennara til starfa í umsjónarkennslu á yngsta og miðstigi auk kennslu íþrótta, smíða og íslensku á unglingastigi. Sjá nánar...