Bæjarráð

Bæjarráð fer, ásamt bæjarstjóra, með framkvæmdastjórn bæjarins og fjármálastjórn. Það hefur umsjón með stjórnsýslu bæjarins. Erindi frá bæjarbúum, sem falla ekki undir hefðbundin verkefni fagnefnda bæjarins, eru að jafnaði lögð fyrir bæjarráð sem tekur ákvörðun um afgreiðslu þeirra eða vísar þeim til fagnefnda eða bæjarstjórnar.

Bæjarráð Mosfellsbæjar er skipað þremur af aðalfulltrúum í bæjarstjórn sem kjörnir eru til eins árs, í júní ár hvert. Bæjarráð fundar að jafnaði á hverjum fimmtudegi kl. 7:30.

Fundargerðir bæjarráðs                                                           

Bæjarstjóri, Haraldur Sverrisson,  situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétti.

Bæjarritari, Stefán Ómar Jónsson, annast ritun fundargerða.

Aðalmenn í bæjarráði 2012 - 2013 voru kjörnir:  

Hafsteinn Pálsson aðalmaður af D lista  formaður
Bryndís Haraldsdóttir aðalmaður af D lista  varaformaður
Jónas Sigurðsson aðalmaður af S lista   
Jón Jósef Bjarnason áheyrnarfulltrúi af M lista   
Karl Tómasson áheyrnarfulltrúi af V lista