Bæjarstjórn

Framkvæmdastjórn sveitarfélagsins kallast bæjarstjórn og er skipuð sjö fulltrúum sem kjörnir eru í sveitarstjórnarkosningum til fjögurra ára í senn. Bæjarstjórn fer með æðsta ákvörðunarvald varðandi framkvæmd þeirra verkefna sem sveitarfélagið annast og nýtingu tekjustofna þess. Bæjarstjórn fer með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélagsins og hefur æðsta vald varðandi starfsmannaráðningar sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja í samræmi við Sveitarstjórnarlög nr.45/1998

Fundir bæjarstjórnar
Bæjarstjórn heldur að jafnaði fundi, annan hvern miðvikudag (þó ekki á sumrin), í fundarsal bæjarstjórnar, Helgafelli, á 2. hæð í Kjarna Þverholti 2. Fundirnir hefjast kl. 16:30 og eru opnir almenningi.

Dagskrá funda er auglýst í Þjónustuveri á jarðhæð í Kjarna og hér á vef Mosfellsbæjar.

Fundargerðir bæjarstjórnar

Kjörnir fulltrúar í bæjarstjórn
Fulltrúar D lista og V lista eru saman með meirihluta í bæjarstjórn Mosfellsbæjar kjörtímabilið 2010-2014.

Aðal- og varafulltrúar í bæjarstjórn Mosfellsbæjar kjörtímabilið 2010 - 2014 voru kjörnir:

Hafsteinn Pálsson aðalmaður  af D lista   Dalatanga 29 Forseti     
Karl Tómasson  aðalmaður af V lista Leirvogstungu 2 1. varaforseti
Herdís Sigurjónsd aðalmaður af D lista Rrituhöfða 4 2. varaforseti
Haraldur Sverrisson aðalmaður af D lista Hulduhólum  
Bryndís Haraldsdóttir aðalmaður af D lista Skeljatanga 12  
Jón Jósef Bjarnason aðalmaður af M lista Brattholti 2b  
Jónas Sigurðsson aðalmaður
af S lista Hlíðartúni 8  
       
Bryndís Brynjarsdóttir  1. varabæjarfulltrúi   af V lista  Fellsási 9a   
Kolbrún G Þorsteinsdóttir 1. varabæjarfulltrúi af D lista Áslandi 3  
Rúnar Bragi Guðlaugsson 2. varabæjarfulltrúi af D lista Tröllateigi 21  
Theódór Kristjánsson 3. varabæjarfulltrúi af D lista Súluhöfða 9  
Eva Magnúsdóttir 4. varabæjarfulltrúi af D lista Leirvogstungu 20  
Þórður Björn Sigurðsson 1. varabæjarfulltrúi af M lista Rauðumýri 1  
Hanna Bjartmars Arnardóttir 1. varabæjarfulltrúi af S lista Reykjaseli  
       


Bæjarritari, Stefán Ómar Jónsson, annast ritun fundargerða.

Samþykkt um stjórn Mosfellsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar