Lesa fundargerð

24.5.2012

Bæjarráð Mosfellsbæjar - 1076 - 24.05.2012

1076. fundur
Bæjarráðs Mosfellsbæjar
haldinn að Þverholti 2, 2. hæð Helgafell, 
fimmtudaginn 24. maí 2012 og hófst hann kl. 07:30


Fundinn sátu:
Bryndís Haraldsdóttir (BH), Jón Jósef Bjarnason (JJB), Jónas Sigurðsson (JS), Hafsteinn Pálsson (HP), Haraldur Sverrisson (HSv), Jóhanna Björg Hansen (JBH), Ólafur Gunnarsson.

Fundargerð ritaði:  Jóhanna Björg Hansen, framkvæmdastjóri umhverfissviðs


Dagskrá:

1.     201109392 - Tillögur rýnihóps um gerð og framkvæmd svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins
    Til máls tóku: BH, HP, JS, ÓG og HSv.
Samþykkt með þremur atkvæðum að bæjarstjóri undirriti samkomulag um gerð og framkvæmd svæðisskipulags höfiðborgarsvæðisins og komi á framfæri þeim ábendingum sem fram hafa komið í skipulagsnefnd og bæjarráði.
        
2.     201202172 - Nýbygging við íþróttamiðstöðina að Varmá
    Til máls tóku: BH, HP, JS og JBH.
Samþykkt með þremur atkvæðum að heimila umhverfissviði að bjóða út byggingu nýs íþróttahúss að Varmá.
        
3.     201205120 - Erindi varðandi kaup á landspildu úr landi Sólvalla
    Til máls tóku: BH, HSv, JS, og JJB.
Samþykkt með þremur atkvæðum að heimila bæjarstjóra að ræða við bréfritara og afla frekari upplýsinga.
        
4.     201205141 - Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2013 (og næstu 3ja ára)
    Til máls tóku: BH, HSv og PJL.
Pétur Lockton fjármálastjóri mætti á fundinn undir þessum lið.
Samþykkt með þremur atkvæðum að vinnulag við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár verði með þeim hætti sem greint er í minnisblaði bæjarstjóra og fjármálastjóra.
        
5.     201205142 - Rekstur deilda janúar-mars
    Til máls tóku: BH, PJL, JS og JJB.
Pétur Lockton fjármálastjóri mætti á fundinn undir þessum lið.
Yfirlit yfir rekstur deilda lagt fram til kynningar.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 8:01