Lesa fundargerð

15.6.2012

Bæjarráð Mosfellsbæjar - 1078 - 14.06.2012

1078. fundur
Bæjarráðs Mosfellsbæjar
haldinn að Þverholti 2, 2. hæð Helgafell, 
fimmtudaginn 14. júní 2012 og hófst hann kl. 07:30


Fundinn sátu:
Herdís Sigurjónsdóttir (HS), Bryndís Haraldsdóttir (BH), Jón Jósef Bjarnason (JJB), Jónas Sigurðsson (JS), Bryndís Brynjarsdóttir (BBr), Haraldur Sverrisson (HSv), Stefán Ómar Jónsson (SÓJ).

Fundargerð ritaði:  Stefán Ómar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá:

1.     201205262 - Fyrirspurn frá Eftirlitsstofnun EFTA um sérleyfi
    Til máls tók: HS.
Samþykkt með þremur atkvæðum að fela framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs að svara erindinu, en ekki er um það að ræða að Mosfellsbær hafi gert sérleyfa saminga við auglýsinga- eða kynningarfyrirtæki sem færir þeim einkaleyfi á birtingu auglýsinga, eins og því er lýst í bréfi EFTA.
        
2.     201201381 - Úttekt á ástandi eldri hverfa
    Til máls tóku: HS, BH og HSv.
Erindið lagt fram til kynningar.
        
3.     201008593 - Málefni fatlaðs fólks, yfirfærsla frá ríki til sveitarfélaga
    Samþykkt með þremur atkvæðum að vísa erindinu til framkvæmdastjóra fjölskyldusviðs og fjölskyldunefndar til umsagnar.
        
4.     201205171 - Skrifstofu og starfsaðstaða ungmennafélagsins Aftureldingar
    Til máls tóku: HS, JS, HSv, JJB, BH og BBr.
Samþykkt með þremur atkvæðum að vísa erindinu til framkvæmdastjóra menningarsviðs og íþrótta- og tómstundanefndar til umsagnar.
        
5.     2011081805 - Erindi SSH varðandi samstarf vegna þjónustu við fatlaða
    Til máls tók: HS.
Samþykkt með þremur atkvæðum að vísa erindinu til framkvæmdastjóra fjölskyldusviðs og fjölskyldunefndar til umsagnar.
        
6.     201206027 - Erindi Lagastoðar ehf. varðandi byggingarréttargjald
    Til máls tóku: HS, JJB, HSv, BH, SÓJ og JS.
Samþykkt með þremur atkvæðum að vísa erindinu til framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs til umsagnar.
        
7.     201206039 - Erindi Félags heyrnarlausra varðandi styrk
    Samþykkt með þremur atkvæðum að vísa erindinu til framkvæmdastjóra fjölskyldusviðs og fjölskyldunefndar til umsagnar.
        
8.     201206042 - Erindi Afls, varðandi styrk
    Til máls tóku: HS, JJB og BH.
Samþykkt með þremur atkvæðum að vísa erindinu til framkvæmdastjóra fjölskyldusviðs og fjölskyldunefndar til umsagnar.
        
9.     201206066 - Malbikun og yfirlagnir í Mosfellsbæ 2012
    Til máls tóku: HS, JJB og HSv.
Erindið lagt fram til kynningar og upplýsinga fyrir bæjarráð.
        
10.     201206101 - Erindi, tillögur (verkefnahóps 5) vegna tónlistarskóla og listmenntun
    Til máls tók: HS.
Samþykkt með þremur atkvæðum að vísa erindinu til framkvæmdastjóra menningarsviðs og fræðslunefndar til umsagnar.
        

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:05