Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar

Staðsetning: jarðhæð í Kjarna, Þverholti 2 - 270 Mosfellsbæ


Héraðsskjalavörður: Birna Mjöll Sigurðardóttir
Sími 525 6700
Fax 525 6729 
Netfang: skjalasafn[hja]mos.is
Afgreiðslutímar:  Eftir samkomulagi

Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar var formlega stofnað 24. október 2001.
Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar starfar samkvæmt lögum nr. 66/1985 um Þjóðskjalasafn Íslands og reglugerð nr. 283/1994 um héraðsskjalasöfn og lýtur faglegu eftirliti Þjóðskjalasafns Íslands.

Héraðsskjalasafnið mun annast söfnun, innheimtu og varðveislu skjala frá afhendingarskyldum aðilum, þ.e. embættum, stofnunum og félögum í Mosfellsbæ, skrásetja þau og gera aðgengileg notendum og á allan hátt leitast við að varðveita og efla þekkingu á sögu umdæmisins.

Jafnframt mun safnið safna skjölum einstaklinga og félagasamtaka, auk ljósmynda, hljóð- og myndbanda, sem varða sögu héraðsins eða íbúa þess á einhvern hátt.