Húsaleigubætur

Lög um húsaleigubætur nr.138/1997 tóku gildi 1. janúar 1998.  Markmið laganna eru að lækka húsnæðiskostnað tekjulágra leigjenda og að draga úr aðstöðumun á húsnæðismarkaðnum.

Húsaleigubætur eru greiddar þeim sem leigja íbúðarhúsnæði og eiga þar lögheimili. 

Grunnfjárhæð á hverja íbúð er 13.500 kr. Viðbætur vegna barna er 14.000 kr. vegna fyrsta barns, 8.500 kr. vegna annars barns og 5.500 kr. vegna þriðja barns. Börn þurfa að hafa lögheimili í hinu leigða húsnæði. Að auki koma 15% þess hluta leigufjárhæðar sem liggur á milli 20.000 og 50.000 kr. leigu. Húsaleigubætur geta mest orðið 46.000 kr. á mánuði, þó aldrei hærri en 50% af leigufjárhæð.

Umsókn um húsaleigubætur
Umsókn um húsaleigubætur og sérstakar húsaleigubætur fer fram í gegnum íbúagátt Mosfellsbæjar. Tenglar í þær eru hér til hægri. Umsóknareyðublöð eru jafnframt fáanleg í Þjónustuveri Mosfellsbæjar á 2. hæð í Kjarna að Þverholti 2. Skal þeim skilað inn á sama stað.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 525 6700.

Umsóknir:

Samþykktir:

Nánar um húsaleigubætur:

Húsaleigusamningar: