Félagsstarf eldri borgara

Markmið félagsstarfs eldri borgara er að fyrirbyggja félagslega einangrun aldraðra og finna þekkingu, reynslu og hæfileikum þátttakenda farveg. Listsköpun,  handmennt,  spilamennska, kórstarf, leikfimi, sund og ferðalög eru dæmi um starfsemina.

Félagsstarfið fer fram alla virka daga frá kl. 13:00 til 16:00, auk þess eru námskeið fyrir hádegi m.a. í gler- og leirlist, og einnig eru leikfimitímar kl. 10:45. 
Félagsstarfið er með fastann auglýsingardálk á bls. 6 í Mosfellsingi. 

auglýst dagskrá

Þátttakendur í félagsstarfinu sem ekki hafa aðgang að eigin farartæki né eru færir um að nota almenningsvagna eiga þess kost að fá akstur til og frá félagsstarfi gegn gjaldtöku sem er 206 kr. hver ferð og 20 miða kort kr. 4.058 sem eru til sölu hjá forstöðumanni.

Vorboðinn, Kór eldri borgara 
Æfingar sem fara fram í Safnaðarheimili Lágafellssóknar eru á mánudögum frá kl. 13.00. Öflugt félagsstarf er í tengslum við starfsemi kórsins.

Upplýsingar um félagsstarf og skráningar á námskeið og í ferðir, veitir Svanhildur Þorkelsdóttir forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara í síma 586 8014 frá kl.13:00 til 16:00 virka daga.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 525 6700, 692 0814 og á heimasíðu http://www.mos.is 

Forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara: 
Svanhildur Þorkelsdóttir
Símatími:
Alla virka daga  frá kl. 13:00 til 16:00 í síma  586 8014
Netfang:
 sth[hja]mos.is

Handverksstofan Eirhömrum er opin alla virka daga kl. 13.00-16.00.