Félagsstarf eldri borgara

Markmið félagsstarfs eldri borgara er að fyrirbyggja félagslega einangrun aldraðra og finna þekkingu, reynslu og hæfileikum þátttakenda farveg. Listsköpun,  handmennt,  spilamennska, kórstarf, leikfimi, sund og ferðalög eru dæmi um starfsemina.

  • Handverksstofan Eirhömrum er opin alla virka daga kl. 13.00-16.00.
  • Námskeið fyrir hádegi m.a. í gler- og leirlist
  • Leikfimitímar á fimmtudögum kl. 11.15
  • Vorboðinn, Kór eldri borgara, æfingar eru á mánudögum kl.13.00 í Safnaðarheimili Lágafellssóknar. Öflugt félagsstarf er í tengslum við starfsemi kórsins.

Félagsstarfið er með fastann auglýsingardálk á bls. 6 í Mosfellingi. 

Upplýsingar um félagsstarf og skráningar á námskeið og í ferðir, veitir Elva Björg Pálsdóttir forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara í síma 586 8014 frá kl.13:00 til 16:00 virka daga.

Forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara:  Elva Björg Pálsdóttir gsm 698-0090
Símatími:
Alla virka daga  frá kl. 13:00 til 16:00 í síma  586 8014
Netfang:  
elvab[hja]mos.is