Heilsugæsla

Heilsugæslan Mosfellsumdæmi  
Heilsugæslustöð Mosfellsumdæmis nær yfir fjögur sveitarfélög, Mosfellsbæ, Kjalarnes, Kjósar- og Þingvallahrepp.

Heimilisfang: Þjónustumiðstöðinni Kjarna, Þverholti 2,  270 Mosfellsbær  
Sími:
510 0700   

Vefsíða heilsugæslu Mosfellsbæjar

Heilsugæslustöðin, sem áður var til húsa á Reykjalundi, er nú staðsett í Kjarna í Mosfellsbæ og þjónar öllum íbúum svæðisins.  Unnið  er  eftir  lögum  um  heilbrigðisþjónustu. Öll grunnheilbrigðisþjónusta er veitt á stöðinni svo sem almennar lækningar, ungbarna- og mæðravernd og heimahjúkrun.  Smáslysameðferð er veitt á stöðinni, en þar er góð aðstaða til að  sinna  minni  háttar  slysum,  búa  um  og  sauma  sár, fjarlægja bletti og gera ýmsar fleiri smáaðgerðir.  Vaktþjónusta er allan sólarhringinn á stöðinni. Eftir kl. 17 er ekki sérstök símavarsla en vakthafandi læknir svarar sjálfur í símann. Ef vaktlæknir svarar ekki símanum gæti hann verið upptekinn, er fólki bent á að hringja aftur síðar eða í 112 í neyðartilvikum.

Neyðarsími stöðvarinnar er 510 0722  
Fax: 510 0720  
Opið virka daga kl 8-17              

Bráða- og smáslysaþjónusta alla virka daga kl 8-16              
Bráðaþjónusta um helgar og eftir lokun skiptiborðs 892 1263   
 
Vakthafandi læknir farsími 892 1263  
Náist ekki í vakthafandi lækni hringið í síma 112  

Símatímar heimilislækna:         
Þengill Oddsson yfirlæknir               
kl 9:30-10 nema fimmtud  í síma 5100701   

Gríma Huld Blængsdóttir            
kl 9-9:30 nema þriðjudaga og föstudaga í síma 5100702   
 
Guðmundur Karl Sigurðsson               
 kl 13-13:30 nema þriðjudaga og miðvikudaga í síma 5100709   
 
Ingvar Ingvarsson               
kl 11:30-12 nema miðvikudaga í síma 5100704 

Svanur Sigurbjörnsson
kl 11:30-12:00 á fimmtudögum í síma 5100700

Afleysingalæknir
símatími kl. 10-10:30 í síma 5100707
 
Símaþjónusta hjúkrunarfræðinga
Símaþjónusta hjúkrunarfræðinga er til að veita ráðleggingar og svara fyrirspurnum.  Símatími hjúkrunarfræðinga er frá 8:00 - 16 alla virka daga í síma 5100700

Mæðraskoðun: Alla virka daga. Tímapantanir í síma 5100700 

Lyfjaendurnýjun: Alla virka daga kl 9-11 í síma 510 0700

Ung- og smábarnavernd: Alla virka daga nema föstudaga. Tímapantanir og ráðgjöf í síma 5100 700 - 705 og 717

Skólahjúkrun: Hjúkrunarfræðingar eru staðsettir í skólum umdæmisins og eru til viðtals fyrir hádegi

Yfirhjúkrunarfræðingur í síma 5100718